#StayHappening
Thu, 15 Oct, 2026 at 05:00 pm UTC+00:00

Útgáfuhóf - Skepnufólk

  • Salka · Reykjav
Salka Publisher / Host Salka
Share
\u00datg\u00e1fuh\u00f3f - Skepnuf\u00f3lk
Advertisement
Verið hjartanlega velkomin að fagna útgáfu bókarinnar Skepnufólk eftir Hörpu Rún Kristjánsdóttur í bókabúð Sölku fimmtudaginn 15. október kl. 17! Boðið verður upp á léttar veitingar, höfundur les upp og áritar og bókin verður að sjálfsögðu á útgáfutilboði. Við hlökkum til að sjá ykkur!
Um Skepnufólk:
„Í klettunum fyrir neðan þau stóð sú kollótta og titraði. Hún gjóaði augunum í sífellu upp til mannskepnanna og niður á eftir lambinu sínu, milli þess sem hún nuddaði höfðinu við klettinn. Kannski velti hún því líka fyrir sér hvort þetta hefði verið þess virði. Uppi í gljúfrinu söng Eldáin við hamrana. Drungalegan söng um dapurlega fyrirboða.“
Eldáin rennur niður dalinn eins og þráður í gegnum líf sveitunganna. En það er þungi í straumhljóðinu. Æskuvinirnir í dalnum eru borin og barnfædd með bændablóð í æðum og trúa á sauðkindina öðru fremur. Engin þó meira en Ásta sem kann betur við skepnurnar en mannfólkið. Þegar Óttar snýr heim úr dýralæknanámi eru fjórmenningar æskuáranna sameinaðir á ný. En þau eru ekki ung lengur og lífið hefur hert þau. Hringrás lífsins mun brátt raskast og bændurnir neyðast til þess að horfast í augu við sjálf sig í nýjum veruleika og án þess sem þau standa og lifa fyrir.
Skepnufólk er önnur skáldsaga höfundar. Í henni rýnir hún áfram í bændasamfélagið innan frá með þeim áskorunum sem það felur í sér í nútímanum. Fyrsta bók hennar, Kynslóð, segir frá þeim sem þurfa að ákveða hvort þau vilji fara eða vera. Skepnufólk er um fólkið sem var um kyrrt og tekur afleiðingum þess. Fólkið sem lifir fyrir skepnurnar sínar og tekst á við skepnuna í sjálfu sér.
Advertisement

Event venue

Salka, Hverfisgata 89-93,Reykjavík, Iceland, Reykjav

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events

Raddir að austan

Wed, 14 Oct at 08:00 pm Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland