#StayHappening
Wed, 14 Oct, 2026 at 08:00 pm UTC+00:00

Bókakvöld með Bergi Ebba

  • Salka · Reykjav
Salka Publisher / Host Salka
Share
B\u00f3kakv\u00f6ld me\u00f0 Bergi Ebba
Advertisement
BÓKAKVÖLD MEÐ BERGI EBBA
Við höldum fyrsta bókakvöld vetrarins í nýju og glæsilegu viðburðarými á neðri hæð bókabúðar Sölku miðvikudaginn 14. október kl. 20. Þá kemur Bergur Ebbi til okkar en hann gaf nýverið út bók sem slegið hefur í gegn og nefnist Öld ímyndunaraflsins.
Útvarpsmaðurinn góðkunni, Freyr Eyjólfsson, mun leiða samtalið við Berg Ebba og það er ljóst að fróðlegt kvöld er í vændum. Bókin er að sjálfsögðu til sölu á staðnum og hiklaust hægt að fá hana áritaða af höfundi. Bókabarinn er opinn að venju og hægt er að væta kverkarnar á staðnum.
Athugið að ekki er lyfta á neðri hæðina en hægt er að hafa samband við okkur á [email protected] og fá aðgengi beint inn á neðri hæðina. Aðgangur er ókeypis.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Advertisement

Event venue

Salka, Hverfisgata 93, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events