Advertisement
(English description below - this event takes place in English)Hvers vegna hefur ríki sem liggur ekki að Norður-Íshafi áhuga á heimskautarannsóknum, rússnesku jarðgasi og samstarfi á norðurslóðum? Jósteinn Kristjánsson segir frá umsvifum Kína á Svalbarða, við norðurströnd Rússlands og hér á Íslandi. Með myndum og dæmum skoðar hann hverju Kínverjar sækjast eftir, hvað þeir geta þegar gert og hvar þeir eru háðir samstarfi við aðra. Vísindi, viðskipti og stórveldapólitík leiða okkur að spurningu sem stendur okkur nær: Hvað vill Ísland fá út úr þessu sambandi og hvert er svigrúm okkar til að velja?
Ekki þarf sérþekkingu á efninu og að erindinu loknu gefst tækifæri til spjalls.
Um fyrirlesarann:
Jósteinn Kristjánsson er MA-nemi í alþjóðasamskiptum, rannsóknarfélagi við NAADSN og verkefnastjóri hjá Fulbright-stofnuninni á Íslandi. Hann er með BA-próf í kínverskum fræðum og hefur búið og stundað nám í Kína. Í rannsóknum sínum vinnur hann með heimildir á kínversku, rússnesku, íslensku og ensku. Áhugi hans beinist meðal annars að Kína, Rússlandi, stjórnmálum norðurslóða og svigrúmi smáríkja til athafna.
Erindið verður flutt á ensku í stofu 007 í Veröld - húsi Vigdísar 15. okt kl.17:30.
Boðið er upp á léttar veitingar áður en fyrirlestur hefst – verið velkomin! ☕
Viðburðurinn er hluti af fyrirlestraröðinni Snarl og spjall um Kína sem Kínversk-íslenska menningarfélagið stendur að í samvinnu við Konfúsíusarstofnunina Norðurljós. Fyrirlestraröðin skapar vettvang til að spjalla saman og kynnast fjölbreyttum málefnum tengdum Kína.
***
Why is a country without an Arctic coastline investing in polar research, Russian gas and a place in Arctic affairs? Through photographs and stories from Svalbard, Russia’s Arctic coast and Iceland, Jósteinn Kristjánsson explores what China wants in the north, what it can already do, and where it still depends on others. The talk connects science, business and great-power politics with a question closer to home: what does Iceland want from this relationship, and how much room does it have to choose?
An accessible introduction for curious newcomers, with space for conversation afterwards.
About the speaker:
Jósteinn Kristjánsson is an Icelandic MA student in International Relations, a NAADSN Research Fellow and Fulbright Iceland Program Coordinator. He holds a BA in Chinese Studies and has lived and studied in China. His research draws on Chinese, Russian, Icelandic and English sources, with interests in China, Russia, Arctic politics and the choices available to small states.
The talk will be in English and takes place in Veröld – House of Vigdís, room 007, October 15th, 5:30 pm.
Light refreshments will be served before the talk begins – welcome everyone! ☕
The event is part of the lecture series Snacks and Chats about China, organized by the Icelandic-Chinese Cultural Society in cooperation with the Confucius Institute Norðurljós. The lecture series provides a platform for conversation and an opportunity to explore a wide range of topics related to China.
Advertisement
Event venue
Veröld hús Vigdísar, Brynjólfsgata 1, 101 Reykjavík, Iceland, Brynjólfsgata 1, 107 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland
Tickets