#StayHappening
Thu, 15 Oct, 2026 at 03:00 pm UTC+00:00

Málþing: Frumkvöðlar í norrænni ljósmyndun

  • Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland · Reykjav
\u00dej\u00f3\u00f0minjasafn \u00cdslands\/ National Museum of Iceland Publisher / Host Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland
Share
M\u00e1l\u00feing: Frumkv\u00f6\u00f0lar \u00ed norr\u00e6nni lj\u00f3smyndun
Advertisement
Málþing um konur í norrænni ljósmyndun og kynning á bókinni Striving for Independence: Nordic Women Studio Photographers 1860 – 1920.
Fimmtudaginn 15. október kl. 15-17 munu Þjóðminjasafn Íslands og Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands standa fyrir málstofu um konur í norrænni ljósmyndun á árunum 1860-1920. Málþingið er haldið í tengslum við útgáfu bókarinnar Striving for Independence. Nordic Women Studio Photographers, 1860-1920.
Striving for Independence: Nordic Women Studio Photographers 1860-1920, er alþjóðlegt fræðirit sem fjallar um konur sem störfuðu sem ljósmyndarar víðs vegar um Norðurlönd á tímabilinu. Með nýjum rannsóknum og einstöku myndefni er varpað ljósi á konur sem frumkvöðla, listamenn og brautryðjendur í faginu og lögð áhersla á að skoða hvernig störf kvenna í ljósmyndaheiminum sköpuðu nýjar forsendur fyrir efnahagslegt og pólitískt sjálfstæði. Þær rannsóknir sem kynntar eru í bókinni sýna að kvenkyns ljósmyndarar, allt frá stórborgunum Kaupmannahöfn og Stokkhólmi til smærri bæja í Finnlandi og á Íslandi, áttu ýmislegt sameiginlegt og höfðu afgerandi áhrif á bæði þróun fagsins og stöðu kvenna í samfélaginu. Margar þeirra sem ráku eigin stofur réðu eingöngu konur sem aðstoðarmenn, sumar þeirra giftust aldrei og nokkrar þeirra bjuggu í ævilöngum samböndum með konum. Þar að auki tilheyrðu þessir frumkvöðlar kynslóð sem í fyrsta sinn hafði vald til að skilgreina og móta hvernig þær sjálfar og aðrar konur birtust í gegnum myndefni. Á þessu tímabili störfuðu þó nokkuð margar konur sem ljósmyndarar á Íslandi, þær sóttu sér menntun til Danmerkur og Þýskalands, og ráku sumar hverjar eigin ljósmyndastofur á Íslandi um lengri eða styttri tíma. Með þeim hætti gátu þær ekki aðeins lagt rækt við starf sem þær höfðu valið sér, og jafnvel ræktað sjálfstæða listsköpun. Auk þess gátu þær séð fyrir sér og sínum og verið óháðar öðrum fjárhagslega.
Á málþinginu munu þær Æsa Sigurjónsdóttir, Sigrún Alba Sigurðardóttir og Inga Lára Baldvinsdóttir kynna rannsóknir sínar á íslenskum ljósmyndurum á tímabilinu og segja frá bókinni.
Boðið verður upp á léttar veitingar að málþingi loknu.
Æsa Sigurjónsdóttir er prófessor í listfræði við Hugvísindasvið Háskóla Íslands og sýningastjóri. Hún hefur sett upp fjölda listasýninga og hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin árið 2023 fyrir útgefið efni. Auk þess hefur hún skrifað um samtímalist bæði á innlendum og erlendum vettvangi. Hún var annar tveggja ritstjóra bókarinnar Fegurðin er ekki skraut. Íslensk samtímaljósmyndun (2020). Framlag Æsu í bókinni Striving for Independence fjallar um ljósmyndarann Sigríði Zoëga (1989-1968) og veru hennar hjá hinum þekkta ljósmyndara August Sander í Þýskalndi á árunum fyrir fyrri heimstyrjöld, auk þess sem hennar eigin myndatökum eru gerð góð skil.
Sigrún Alba Sigurðardóttir er sjálfstætt starfandi fræðimaður, rithöfundur og sýningarstjóri. Sigrún Alba lauk doktorsprófi frá Hugvísindasviði Háskóla Íslands fyrr á árinu og er stundakennari við sama svið. Hún hefur unnið fjölda rannsókna á sviði ljósmyndafræða og er meðal annars höfundur bókanna Snjóflygsur á næturhimni. Um ljósmyndir, minningar og snertingu við veruleikann (2022) og Afturgöngur og afskipti af sannleikanum (2009), auk þess sem hún var annar tveggja ritstjóra bókarinnar Fegurðin er ekki skraut. Íslensk samtímaljósmyndun (2020). Framlag Sigrúnar Ölbu í bókinni Striving for Independence fjallar um ljósmyndarana Önnu Schiöth (1846-1921) og Engel Jensen (1877-1963) sem báðar störfuðu um árabil sem ljósmyndarar á Akureyri.
Inga Lára Baldvinsdóttir var forstöðumaður Ljósmyndasafns Íslands hjá Þjóðminjasafni Íslands í þrjá áratugi og frumkvöðull í rannsóknum á íslenskri ljósmyndasögu. Hún starfar nú við myndaritsjórn og sinnir fræðimennsku. Framlag Ingu Lára í bókinni Striving for Independence fjallar um ljósmyndarann Nicoline Weywadt (1848-1921) og brautryðjendastarf hennar við ljósmyndun á Austurlandi.
-----
Symposium on women in Nordic photography and presentation of the book Striving for Independence: Nordic Women Studio Photographers 1860 – 1920.
On Thursday, October 15, from 3:00 to 5:00 PM, the National Museum of Iceland and the Institute of Research in Literature and the Arts at the University of Iceland will host a symposium on women in Nordic photography between 1860 and 1920. The symposium is held in conjunction with the publication of the book Striving for Independence: Nordic Women Studio Photographers, 1860–1920.
Striving for Independence: Nordic Women Studio Photographers 1860–1920 is an international scholarly publication examining women who worked as photographers across the Nordic region during this period. Through new research and unique imagery, it highlights women as pioneers, artists, and trailblazers in the profession, focusing on how women's work in the world of photography created new opportunities for economic and political independence. The research presented in the book shows that female photographers, ranging from those in major cities like Copenhagen and Stockholm to those in smaller towns in Finland and Iceland, shared many commonalities and exerted a decisive influence on both the development of the profession and the status of women in society. Many who ran their own studios hired only women as assistants; some never married, while others lived in lifelong relationships with women. Furthermore, these pioneers belonged to a generation that, for the first time, had the power to define and shape how they themselves and other women were portrayed in imagery.
During this period, a significant number of women worked as photographers in Iceland; they sought training in Denmark and Germany, and some operated their own studios in Iceland for varying lengths of time. In doing so, they were able not only to pursue their chosen profession, and even cultivate independent artistic work, but also to support themselves and their families, remaining financially independent of others.
At the symposium, Æsa Sigurjónsdóttir, Sigrún Alba Sigurðardóttir, and Inga Lára Baldvinsdóttir will present their research on Icelandic photographers from that period and discuss the book.
Light refreshments will be served following the symposium.
Please note that the event is in Icelandic.
Advertisement

Event venue

Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland, Suðurgata 41, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events

Raddir að austan

Wed, 14 Oct at 08:00 pm Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland