Advertisement
Á þessum tónleikum koma fram arfi, KHAIRKHAN og Strákurinn fákurinn.Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Rás 2, stendur fyrir Upprásinni, tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur.
Upprásin fer nú fram fjórða árið í röð og munu samtals 27 hljómsveitir koma fram, þrjár á hverju tónleikakvöldi. Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar.
Almennt miðaverð er aðeins 2000 kr. og sérstakt stuðningsverð vildarvina er 5000 kr. Einnig er hægt að leggja til hærri upphæð í miðasöluferlinu sem rennur beint til listafólksins.
**
arfa skipa Katrín Helga Ólafsdóttir (K.óla), sem syngur og leikur á bassa, Stefan Vidal-Schneider á trommur og hljóðgervla og Tobias Link á básúnu, effektatæki og hljóðgervla. Leiðir þremenninganna lágu saman á tónlistarsmiðju í danska smábænum Fredericia árið 2022 þar sem þau uppgötvuðu sameiginlegan áhuga á melódísku poppi og spunatónlist.
Fyrsta smáskífa sveitarinnar, spring underwater, kom út í maí 2026 í samstarfi við sóleyju, RAKEL og fleiri. Í tónlist arfi mætast togstreitan milli ofurtengdrar stafrænnar menningar og mannlegs eðlis og hún fangar jafnt ringulreiðina sem fegurðina í rafmögnuðum heimi samtímans.
**
KHAIRKHAN er tónlistarmaður frá Innri-Mongólíu, af Khorchin-ættbálknum í austurhluta Innri-Mongólíu, en býr nú í Reykjavík. Hann ólst upp á hinum víðfrægu Khorchin-sléttum, þar sem rík þjóðlagatónlistarhefð og munnmælasögur mótuðu uppvöxt hans.
Khairkhan leggur áherslu á hefðbundin mongólsk hljóðfæri á borð við morin khuur, tsuur og tovshuur, auk mongólsks barkasöngs sem er einn af hornsteinum tónlistar hans. Þjóðlagatónlistin sem hann flytur á rætur sínar einkum að rekja til Khorchin-héraðsins, þar sem margar af mikilvægustu tónlistarhefðum og tónlistarstefnum Mongóla urðu til.
Í dag vinnur Khairkhan að því að þróa nýja sýn á tilraunakennda mongólska þjóðlagatónlist, mótaða af lífi 21. aldar hirðingja í borgarsamfélagi. Markmið hans er að varðveita aldagamlar rætur og hefðir en túlka þær með nútímalegum hætti.
**
Strákurinn fákurinn er akureysk hljómsveit sem spilar hamfara no wave. Meðlimir eru Agnieszka Staroń, Kęstutis Balčiūnas, Drengurinn fengurinn og Stefán Bessason.
********
This concert features arfi, KHAIRKHAN and Strákurinn fákurinn.
Harpa, in collaboration with the Reykjavík Music City and Rás 2, is hosting Upprásin, a concert series dedicated to grassroots Icelandic music, across musical genres. Upprásin is now taking place for the fourth year in a row and a total of 27 bands will perform, three on each concert night.
Ticket prices are only 2000 ISK and 5000 ISK for those who want to contribute more. It is also possible to contribute a higher amount during the ticket sales process, which will go directly to the artists.
*
arfi is an Icelandic/German trio, creating an experimental blend of electronic and organic pop, introspective music for rapidly changing times. The group formed after meeting at an improvisation workshop in Fredericia, Denmark in 2023, where they discovered a shared love for melodic pop and spontaneous creation. The trio consists of Katrín Helga Ólafsdóttir (K.óla) on vocals and bass, Stefan Vidal-Schneider on drums and synthesizers, and Tobias Link on trombone, effects, and synths, with mixing and mastering by Lukas Streich.
Their six-track debut EP spring underwater, out May 8, 2026, was recorded in Iceland in January 2025 in collaboration with artists including Sóley and RAKEL. Their music explores the tension between hyper-connected digital culture and human nature, capturing both the chaos and beauty of today’s electric world.
*
KHAIRKHAN is an Inner Mongolian musician from the Khorchin Tribe in the east side of Inner Mongolia and lives in Reykjavík, Iceland. He grew up in the famous Khorchin grasslands with rich folk music and stories.
He focuses on traditional Mongolian instruments such as morin khuur, tsuur and tovshuur, also Mongolian throat singing as one of his main performances. The folk music he plays is mainly from Khorchin region, where a great amount of Mongolian folk music and genres were born.
Currently Khairkhan is trying to create a new concept of experimental Mongolian folk music as a 21st century nomad living in the city. There is a meaning of keeping the roots passed down through centuries but in a modern method.
*
Strákurinn fákurinn is a band from Akureyri, Iceland, playing apocalyptic no wave. The band consists of Agnieszka Staroń, Kęstutis Balčiūnas, Drengurinn fengurinn, and Stefán Bessason.
Advertisement
Event venue
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland
Tickets