Advertisement
Kvikmyndasafn Íslands býður til sérstakrar kvikmyndasýningar í Tónbergi á Vökudögum þar sem dregnar verða fram sjaldséðar perlur úr safnkosti þess. Á dagskrá eru gamlar kvikmyndir frá Akranesi og nágrenni sem margar hafa ekki verið sýndar opinberlega í áratugi.Gestir fá einstakt tækifæri til að stíga aftur í tímann og kynnast íþróttaafrekum, sjómennsku og daglegu lífi í ört vaxandi sjávarþorpi á 20. öld þar sem knattspyrnan var aldrei langt undan. Myndirnar eru ómetanlegar heimildir um sögu og samfélag Akraness og vekja fortíðina til lífs á hvíta tjaldinu.
Sýningin fer fram kl. 17 þann 27. október í Tónbergi á Akranesi.
Advertisement
Event venue
Dalbraut 1, 300 Akraneskaupstaður, Ísland, Dalbraut 1, 300 Akraneskaupstaður, Ísland, Reykjav, Iceland
Tickets