#StayHappening
Wed Oct 28 2026 at 08:00 pm to 09:30 pm UTC+00:00

Hróðmar Sigurðsson kvartett á Múlanum

  • Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland · Reykjav
Mulinn Jazz club Publisher / Host Mulinn Jazz club
Share
Hr\u00f3\u00f0mar Sigur\u00f0sson kvartett \u00e1 M\u00falanum
Advertisement
Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með haustdadagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 28. október kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum kemur fram kvartett gítarleikarans Hróðmars Sigurðarsonar sem mun flytja tónlist Hróðmars, en hann hefur sent frá sér tvær plötur, Hróðmar Sigurðsson (2021) og +1 (2025). Hann vinnur nú að nýrri plötu fyrir kvartett og mun flytja töluvert af nýju efni á tónleikunum, sem væntanlegt er á þeirri plötu á næsta ári. Tónlistin fellur undir jazzregnhlífina, en þar má einnig greina áhrif úr rokktónlist, ambient og sálartónlist. Unnið er að miklu leyti með frjálsan spuna, þar sem hljómsveit Hróðmars gegnir mikilvægu hlutverki í útsetningu og mótun tónmálsins. Hróðmar Sigurðsson hefur hlotið viðurkenningu sem bæði hljóðfæraleikari og tónskáld. Hann var valinn „bjartasta vonin í jazz- og blústónlist“ á Íslensku tónlistarverðlaununum 2021 og hljómsveit hans hlaut jafnframt tilnefningu til verðlaunanna sem „besti flytjandinn“ á sömu hátíð. Ásamt Hróðmari koma fram Eiríkur Orri Ólafsson sem leikur á trompet, bassaleikarinn Birgir Steinn Theódórsson og Sólrún Mjöll Kjartansdóttir sem leikur á trommur.
Hróðmar Sigurðsson Quartet
Guitarist and composer Hróðmar Sigurðsson will perform his original music with his quartet. He released his debut album, Hróðmar Sigurðsson, in 2021, followed by his second album, +1, in 2025. His music blends jazz with influences from rock, ambient, and soul, while incorporating elements of free improvisation. The quartet plays an integral role in shaping the arrangements and developing the overall sound of the music. Hróðmar was named Newcomer of the Year at the 2021 Icelandic Music Awards, while his band was also nominated for Performer of the Year at the same awards.
Hróðmar Sigurðsson, guitar, pedal steel
Eiríkur Orri Ólafsson, trumpet
Birgir Steinn Theódórsson, bass
Sólrún Mjöll Kjartansdóttir, drums
The concert starts at 20 @ Kaldalón, Harpa Concert House. Tickets ISK 5200.
Spennandi haustdagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í mðjan desember. Múlinn er að á sínu 29. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.
Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.
Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna.
Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 5200 og 3800 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu
Advertisement

Event venue

Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events

Loftslagsdagurinn 2026

Wed, 28 Oct at 08:30 am Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre