Advertisement
Tvö tónverk sem takast á við hinstu rök tilverunnar eru viðfangsefni þessara hádrama-tísku tónleika. Eyja hinna dauðu er áhrifamikið tónaljóð eftir Rakhmanínov sem er innblásið af samnefndu málverki eftir Arnold Böcklin og Sinfónía nr. 13, „Babí Jar“, eftir Shostakovitsj er stórfenglegt verk fyrir bassasöngvara, karlakór og hljómsveit við ljóð eftir Jevgení Jevtúsjenko. Verkið er vitnisburður um siðferðisþrek og mannlega samkennd þar sem beisk kaldhæðni og djúp sorg takast á. Saman skapa þessi tvö meistaraverk sterka upplifun sem lætur engan ósnortinn. Bassasöngvarinn Alexander Roslavets er rísandi stjarna í óperuheiminum og hefur hvarvetna hlotið góðar viðtökur. Hljómsveitarstjórinn Andris Poga stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands á síðasta ári við góðar undirtektir.Efnisskrá
Sergej Rakhmanínov Eyja hinna dauðu
Dmítríj Shostakovitsj Sinfónía nr. 13 „Babí Jar“
Hljómsveitarstjóri
Andris Poga
Einleikari
Alexander Roslavets
Kórar
Karlakórinn Fóstbræður
Sönghópurinn Kyrja
//
Two compositions that address the ultimate logic of existence are the subject of this highly dramatic concert. Isle of the Dead is a moving tone poem by Rachmaninoff, inspired by the painting of the same name by Arnold Böcklin and Symphony No. 13, "Babi Yar", by Shostakovich, is a magnificent work for bass, male choir, and orchestra set to poems by Yevgeny Yevtushenko. The work is a testament of moral fortitude and human compassion, where bitter irony and deep grief collide. Together, these two masterpieces create a powerful experience that leaves no one untouched. Bass singer Alexander Roslavets is a rising star in the opera world and has been well received everywhere he goes. Conductor Andris Poga conducted the Iceland Symphony Orchestra last year to great acclaim.
Program
Sergei Rachmaninoff Isle of the Dead
Dmitri Shostakovich Symphony No. 13, “Babi Yar”
Conductor
Andris Poga
Soloist
Alexander Roslavets
Choirs
Fóstbræður Male Choir
Kyrja Vocal Ensemble
Advertisement
Event venue
Eldborg, Harpa, Austurbakka 2, Austurbakki 2,Reykjavík, Iceland, Reykjav
Tickets