#StayHappening
Thu, 29 Oct, 2026 at 08:00 pm UTC+00:00

Helga M. Novak og íslenska bókmenntasenan: Úr greipum Austur-Þýskalands yfir á Mokka

  • Arngrímsgata 5, 107 Reykjavíkurborg, Ísland · Reykjav
F\u00e9lag \u00edslenskra fr\u00e6\u00f0a Publisher / Host Félag íslenskra fræða
Share
Helga M. Novak og \u00edslenska b\u00f3kmenntasenan: \u00dar greipum Austur-\u00de\u00fdskalands yfir \u00e1 Mokka
Advertisement
Fyrsta rannsóknarkvöld vetrarins verður fimmtudaginn 29. október klukkan 20:00 í fyrirlestrarsal Eddu. Þá mun Heimir Freyr Viðarsson, lektor við Menntavísindasvið HÍ, flytja erindið „Helga M. Novak og íslenska bókmenntasenan: Úr greipum Austur-Þýskalands yfir á Mokka“
Í erindinu verður fjallað um ótrúlegt lífshlaup hinnar austurþýsku Helgu M. Novak (1935-2013), öðru nafni María Karlsdóttir, með áherslu á tengsl hennar við íslenska rithöfunda og skáld. Helga bast listamönnum á borð við Dag Sigurðarson, Ástu Sigurðardóttur og Guðberg Bergsson nánum böndum og verður þessum kynnum hennar gerð skil með hliðsjón af verkum Helgu, einkaskjölum og fyrri rannsóknum. Lýsingar Helgu á samvistum við Dag og ekki síst vinasamband hennar við Ástu eru allt í senn persónulegar og nöturlegar, og Guðberg, sem hún mat mikils, enda tók hún fljótt til við að þýða hann á þýsku. Dregnar verða upp svipmyndir úr lífi Helgu með austurþýsku leyniþjónustuna Stasi á hælunum og hvernig lífið á Mokka Kaffi í Reykjavík um og upp úr 1960 leysti eitthvað úr læðingi hjá þessum eilíft flögrandi farfugli sem (jafnan) óttaðist ekkert og neitaði að láta fanga sig. Flutt verður ljóð sem Helga orti um Ástu Sigurðardóttur, ásamt því að birt verða hnýsileg brot úr einkaskjalasafni Helgu sem varpa ljósi á líf hennar og persónu.
Að venju verða umræður í lokin ásamt léttum veitingum.
Sama kvöld fer jafnframt fram aðalfundur Félags íslenskra fræða klukkan 19:00. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.
Verið öll hjartanlega velkomin!
Advertisement

Event venue

Arngrímsgata 5, 107 Reykjavíkurborg, Ísland, Arngrímsgata 5, 107 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events