Advertisement
Jón Viðar Sigurðsson jarðfræðingur og fjallagarpur mun flytja erindið "Esjufjöll - jöklabreytingar, jökulstífluð lón, jökulhlaup og jarðhiti". Hann hefur náð að mynda tæmingu jökullónsins í Fossadal í tvígang, sumarið 2025 og 2026 með myndavél. Þegar lónið nær ákveðinni hæð hleypur vatnið undir Esjufjallajökul og skilar sér í Jökulsárlón á Breiðamerkursandi. Þar sem Jökulsárlón dempar jökulhlaupin eru áhrif þeirra í byggð frekar lítil, en þó eru dæmi þess að gönguleiðir við lónið fari á kaf og rennsli Jökulsár aukist. Fyrir áhugasama birtist í síðasta hefti Jökuls grein um jökulhlaupum úr Fossadal eftir Jón Viðar og félaga https://jokull.jorfi.is/articles/jokull2025.75/jokull2025.75.087.pdf. Einnig verða sýndar fallegar myndir af jarðhitasvæðinu við suðurenda Esjubjarga. Eftir hlé sýnum við stuttmyndina "Glacier Fever" eftir þau Donal Boyd og Emma Romeijn, sem fjallar um Jöklarannsóknafélagið með áherslu á samstarf vísindafólks og sjálfboðaliða. Sögumaður er Helgi Björnsson jöklafræðingur. Myndin hlaut styrk frá Leica og var unnin í tilefni af alþjóðaári jökla 2025.
Stephan Mantler, jöklaleiðsögumaður, ljósmyndari, forritari og björgunarsveitarmaður ætlar að segja frá mælingum og kortlagningu á skriðjöklum, íshellum, uppsetningu á veðurstöðvum og myndavélum ásamt nýlegu vöktunarkerfi til þess að bæta öryggi í jöklaferðamennsku. Erindið heitir: "Opportunistic mapping of glaciers and ice caves".
Óafengir og áfengir drykkir í boði meðan birgðir endast.
Advertisement
Event venue
RVK Bruggfélag Tónabíó, Skipholt 33, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland
Tickets