#StayHappening
Thu, 29 Oct, 2026 at 04:00 pm UTC+00:00

Félagsfræðidagurinn 2026 - málþing um upplýsingaóreiðu

  • Oddi - Háskóli Íslands · Reykjav
F\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0ingaf\u00e9lag \u00cdslands Publisher / Host Félagsfræðingafélag Íslands
Share
F\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0idagurinn 2026 - m\u00e1l\u00feing um uppl\u00fdsinga\u00f3rei\u00f0u
Advertisement
Félagsfræðidagurinn verður haldinn hátíðlegur 29. október kl. 16:00 í Odda 101
Félagsfræðidagurinn verður haldinn hátíðlegur fimmtudaginn 29. október næstkomandi. Í ár verður þema Félagsfræðidagsins upplýsingaóreiða (e. information disorder), sem vísar til dreifingu rangra, misvísandi eða skaðlegra upplýsinga í samfélaginu. Upplýsingaóreiða hefur aukist undanfarin ár samhliða aukinni skautun í samfélagsumræðunni sem og uppgangi nýmiðla, samfélagsmiðla og gervigreindar. Í ljósi þessa er mikilvægt að beina sjónum að upplýsingaóreiðu og rýna í birtingarmyndir hennar, útbreiðslu og áhrif á samfélagið.
Í tilefni Félagsfræðidagsins munu sérfræðingar á sviðinu fjalla um upplýsingaóreiðu í víðu samhengi. Saman munu viðstaddir m.a. rýna í hvað einkennir upplýsingaóreiðu, hvernig hún verður til og hvaða áhrif hún getur haft á samfélagið.
Auk áhugaverðra erinda verða veitt verðlaun fyrir framúrskarandi lokaritgerðir í félagsfræði skólaárið 2025/2026.
Viðburðurinn fer fram í Odda 101. Boðið verður upp á kaffi og bakkelsi frá kl. 16:00, en formleg dagskrá hefst kl. 16:15.
Dagskrá:
16:15 til 16:30 Verðlaun veitt fyrir framúrskarandi lokaritgerð í grunn- og meistaranámi í félagsfræði.
16:30 til 16:50 Staða blaðamennsku á Íslandi á tímum upplýsingaóreiðu - Jón Gunnar Ólafsson, lektor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.
16:50 til 17:10 Tekist á við upplýsingaóreiðu á Íslandi: Fyrstu niðurstöður NORDREN verkefnisins – Hulda Þórisdóttir, prófessor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.
17:10 til 17:30 Eyjan í upplýsingaóreiðunni – félagslegt netöryggi á Íslandi – Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri hjá NETVÍS – Netöryggismiðstöð Íslands.
Fundarstjóri: Adda Guðrún Gylfadóttir, leiðtogi rannsókna- og örfræðsluefnis hjá Öldu.
Öll velkomin.
Advertisement

Event venue

Oddi - Háskóli Íslands, Sturlugata 3,Reykjavík, Iceland, Reykjav

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events