Advertisement
Tvær myndlistarsýningar verða opnaðar í Havarí á Hrekkjavöku, 31. október. Dr. Gunni og Steinunn Eldflaug, opna hvor sína einkasýninguna:DR. GUNNI – DRAUMUR Í LIT
Dr. Gunni sýnir 14 málverk sem byggja á textunum á plötunum Goð og Drap mann með skóflu með S.H. Draumi. Þetta er önnur einkasýning hans. Sú fyrri, Atvik, var haldin á Mokka kaffi árið 2016.
Af þessu tilefni kemur S.H. Draumur saman og spilar á opnuninni. Hljómsveitin starfaði á árunum 1982–1988, og þetta verður í fyrsta skipti síðan 2010 sem hún leikur opinberlega!
STEINUNN ELDFLAUG – TVÍVÍÐ TÓNLIST
Steinunn Eldflaug útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2011. Síðan þá hefur hún unnið jöfnum höndum að myndlist, forritun, gjörningum og tónlist undir listamannsnafninu dj. flugvél og geimskip. Í fyrra hélt hún einkasýningu í Smekkleysu þar sem hún sýndi vatnslitamyndir. Í Havarí gefur einnig að líta stærri akrílverk, innblásin af biblíusögum, tarotspilum og draumum.
Þetta er sölusýning sem stendur til 30. nóvember.
Öll hjartanlega velkomin!
Advertisement
Event venue
Faxafeni 12, 108 Reykjavík, Iceland, Faxafen 12, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Kopavogur, Iceland
Tickets