Advertisement
Verið hjartanlega velkomin í kakó nidra, föstudaginn 30. október kl. 17:30-18:40, þar sem við hlöðum okkur með yoga nidra, svokölluðum jógískum svefn og tónheilun. Við drekkum 100% hreint kakó frá Guatemala til að auka slökun líkamans og tengingu inn á við.Með iðkun yoga nidra er hægt að ná mjög djúpri slökun með fullri vitund, á dásamlegum stað á milli svefns og vöku þar sem líkaminn hvílist á meðan undirmeðvitundin er leidd í djúpt slökunarástand handan skilningarvitanna þar sem engin streita býr og fullkomin eining ríkir. Yoga nidra getur losað um líkamlega, andlega og tilfinningalega spennu en einn klukkutími af yoga nidra veitir hvíld á við fjögurra tíma svefn. Yoga nidra hefur meðal annars reynst vel í að draga úr streitu og bæta svefn.
Kakó nidra kostar 5500 krónur og er 70 mínútur. Takmarkað pláss er í boði og því nauðsynlegt að bóka sig fyrirfram hér, https://kako.is/products/kakonidra-30okt2026, eða með því að senda tölvupóst á [email protected]. Yoga & Heilsa er á Faxatorgi í Faxafeni 10, 2. hæð.
Fleiri tímar í boði í október í Yoga & Heilsa:
23. okt / 17:30-18:40 / Kakó nidra / https://kako.is/products/kakonidra-23okt2026
25. okt / 17:00-18:40 / KakóRó / https://kako.is/products/kakoro-25okt2026
Kakóið sem við drekkum frá regnskógum Guatemala er svokallað “ceremonial grade cacao” og sannkölluð ofurfæða. Kakó er blóðflæðisaukandi, hefur jákvæð áhrif á úthald og orku, minnkar bólgur, ýtir undir framleiðslu á gleðiboðefninu serótónín, lækkar streituhormónið kortisól og örvar vellíðunarstöðvar í heilanum og framleiðslu á endorfíni. Hér má lesa nánar um kakó, http://bit.ly/hvaderkako.
Kakó nidra leiðir Kamilla Ingibergsdóttir yogakennari og tónheilari en hún hefur stundað yoga og hugleiðslu um árabil og kakóið hefur reynst henni dásamlegur hjálpari í gegnum ýmis verkefni í lífinu.
Advertisement
Event venue
Yoga & Heilsa, Faxafen 10, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Kopavogur, Iceland
Tickets
Discover more events by tag
Yoga in KopavogurMindfulness in KopavogurRelaxation in KopavogurHealth-wellness in KopavogurMeditation in KopavogurWorkshops in Kopavogur