#StayHappening
Sun, 01 Nov, 2026 at 04:00 pm UTC+00:00

,,Það gefur á bátinn…” Endurfundir við dægurlagatexta Kristjáns frá Djúpalæk

  • Salurinn Tónlistarhús · Kopavogur
Salurinn T\u00f3nlistarh\u00fas Publisher / Host Salurinn Tónlistarhús
Share
,,\u00dea\u00f0 gefur \u00e1 b\u00e1tinn\u2026\u201d Endurfundir vi\u00f0 d\u00e6gurlagatexta Kristj\u00e1ns fr\u00e1 Dj\u00fapal\u00e6k
Advertisement
Kristján Einarsson frá Djúpalæk var eitt af bestu ljóðskáldum okkar Íslendinga á 20. öld. Auk þess að vera gott skáld í hefðbundnum skilningi, orti hann texta við mörg vinsæl dægurlög; Sjómannavalsinn, Þórð sjóara, Nótt í Atlavík, Vor í Vaglaskógi og mörg fleiri sem hljómuðu oft í óskalagaþáttum ríkisútvarpsins á þessum árum og hljóma enn.
Hljómsveitin Djúpilækur, hefur sérhæft sig í lögum við texta Kristjáns, og mun leika þau og syngja í Salnum 1. nóvember. . Þar sem af mjög miklu er að taka mun sveitin halda sig að mestu við texta sem Kristján ætlaði til dægurlagabrúks og komu út í kverinu „Það gefur á bátinn“. Flesta þessara texta samdi Kristján í Hveragerði, þar sem hann bjó frá 1950 til 1962. Hljómsveitin mun flytja nýtt lag eftir Írisi Jónsdóttur, söngkonu við texta Kristjáns úr kverinu. Halldór Gunnarsson, einn hljómsveitarmeðlima, þekkti Kristján vel, enda heimagangur á heimili Kristjáns og Unnar konu hans fyrstu 12 æviár sín.
Á milli laga mun Halldór segja stuttlega frá þeim kynnum, ræða hvað bjó að baki þessum áhuga Kristjáns á að taka þátt í „lágmenningunni“, tengsl hans við lagahöfunda, tilurð texta og ýmislegt fleira sem sneri að þessari iðju Kristjáns.

Auk Halldórs, sem leikur á harmonikku, hljómborð og munnhörpu eru í Djúpalæk þau Íris Jónsdóttir, söngkona, Haraldur Þorsteinsson, bassaleikari, Sigurður Reynisson trommuleikari og Þröstur Þorbjarnarson gítarleikari. Allt fólk sem á sér farsæla sögu í tónlistinni.
Advertisement

Event venue

Salurinn Tónlistarhús, Hamraborg 6,Kópavogur, Kopavogur, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Discover more events by tag

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events in Kopavogur

Kopavogur is happening.

See everything else that’s on — concerts, markets, comedy and more.