Advertisement
Þá er komið að því, hið árlega Jólabókaspjall Bókasafns Garðabæjar. Rithöfundar lesa úr nýjustu verkum sínum og við höldum fjörugar umræður um skáldverkin, lífið og tilveruna. Boðið verður upp á léttar veitingar, huggulegheit og að sjálfsögðu ekta jólastemningu.Í upphafi kvöldsins mun Garðakórinn, kór eldri borgara í Garðabæ, flytja nokkur vel valin lög og skapa ljúfa aðventustemningu.
Auður Ava Ólafsdóttir les úr skáldsögunni Tengdasonur Íslands og ræðir meðal annars um hver við erum, hvaðan við komum og hvernig tíminn getur stundum virst renna aftur til uppruna síns. Auður Ava er meðal virtustu og vinsælustu rithöfunda landsins. Verk hennar hafa hlotið fjölda verðlauna og verið þýdd á fjölmörg tungumál. Með næmni, hlýju og einstökum húmor tekst hún á við mannleg samskipti, sjálfsleit og stóru spurningarnar í lífinu.
Margrét Sigrún Höskuldsdóttir les úr nýrri bók sinni Eldur í öskunni leynist, þriðju bókinni um rannsóknarteymið Rögnu og Berg. Margrét hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir spennandi og dulúðarmiklar sögur sem gerast á Vestfjörðum. Fyrri bækur hennar, Dalurinn, Í djúpinu og Lokar augum blám, hafa notið mikilla vinsælda, en sú síðastnefnda hlaut Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin. Í verkum sínum nýtir hún stórbrotna vestfirska náttúru til að skapa sterkt andrúmsloft og eftirminnilega spennu.
Jón Atli Jónasson les úr nýjustu bók sinni Dauðinn er bara myrkur, óhefðbundinni glæpasögu sem grípur lesendur strax á fyrstu blaðsíðu. Jón Atli er margverðlaunað leikskáld, handritshöfundur og rithöfundur. Hann hefur hlotið mikið lof fyrir glæpasögur sínar Brotin og Eitur, þar sem hann sameinar spennu, sterkar persónur og beitta samfélagssýn.
📖 Verið hjartanlega velkomin á notalega og skemmtilega kvöldstund þar sem jólabókaflóðið verður tekið til kostanna í fylgd höfunda, tónlistar og góðra samræðna. 🎄📚✨
Advertisement
Event venue
Garðatorg 7, 210 Garðabær, Iceland, Garðatorg 7, 210 Garðabær, Ísland, Kopavogur, Iceland
Tickets
Discover more events by tag
Books in KopavogurLiterary-art in KopavogurPerformances in KopavogurChristmas in KopavogurStorytelling in Kopavogur