#StayHappening
Fri, 06 Nov, 2026 at 05:00 pm to Sun, 08 Nov, 2026 at 04:30 pm UTC+00:00

KENNARANÁMSKEIÐ - Bandvefsnudd og hreyfifærni

  • Happy Hips · Kopavogur
Happy Hips Publisher / Host Happy Hips
Share
KENNARAN\u00c1MSKEI\u00d0 - Bandvefsnudd og hreyfif\u00e6rni
Advertisement
KENNARANÁMSKEIÐ HELGINA 6. – 8. NÓVEMBER!
BANDVEFSNUDD OG HREYFIFÆRNI KENNARANÁMSKEIÐ, helgi sem inniheldur einstaka fræðslu um vefjakerfi líkamans/bandvefinn, Vagus-taugina, sogæðakerfið, anatómíu og boltanudd. Námskeiðið mun dýpka til muna þína kunnáttu um bandvefinn og hans mikilvæga hlutverk og tengingu við öll kerfi líkamans. Hvernig við notum nuddbolta, öndun, teygjur og hreyfiflæði til þess að losa um spennu í bandvef, auka vökvaflæði, teygjanleika og taugavirkni!
Föstudag 6. nóvember ZOOM 17:00-20:00
Laugardag 7. nóvember 9:30– 16:30
Sunnudag 8. nóvember 9:30– 16:30
Kirkjulundi 19, Garðabær.
Þessi helgi verður bæði fræðandi og skemmtileg . Förum bæði í bóklega og verklegar lotur, vinnum saman í hóp og skemmtum okkur að fræðast um ótrúlega fyrirbærið bandvefinn eða vefjakerfi líkamans. Förum einnig í tenginguna við sogæðakerfið, taugakerfið og djúpöndun.
Þessi einstaka aðferðin linar verki, eykur líkamsstöðu, eykur frammistöðu og hjálpar okkur að lifa betur í eigin líkama!
Dagur 1: Fer fram á Zoom og er fyrirlestur þar sem við fræðumst um fasciu/bandvefinn, sogæðakerfið og Vagus taugina! Eftir helgina verður upptaka aðgengileg.
Dagur 2:
Nemendur læra að hlusta á líkamann. Fræðsla um vefjakerfi líkamans. Fræðsla um anatómíu, þ.e. hvernig allt tengist en á sama tíma er aðskilið með fasciu. Fræðsla um sársauka, þ.e. hvernig taugakerfið virkar.
Tegundir bolta. Yfirferð yfir það hvernig fjórar mismunandi stærðir og mýkt á boltum geta haft ólík áhrif á bandvefinn og nærliggjandi svæði. Nemendur fá þjálfun í mismunandi boltanuddsaðferðum til að losa um spennu í líkamanum, róa taugakerfið og virkja sogæðakerfið.
Dagur 3:
Áframhaldandi fræðsla um anatómíu og virkni taugakerfisins, þ.á.m. ítarleg umfjöllun um Vagustaugina. Áhrif á sogæðakerfið og helstu grunnkerfi líkamans. Yfirferð yfir kennsluaðferðir með blöðrubolta til að nudda svæði sem flökkutaugin teygir anga sína út í.
Yfirferð yfir kennslutækni og tungumál/málanotkun sem henta mismunandi hópum iðkenda og uppbyggingu tíma með ólíkum áherslum.
Nemendur fá þjálfun í aðferðum sem auka hreyfi- og stöðuskyn/proprioception iðkenda. Fræðsla um innriskynjun/interoception sem tengir iðkendur við ósjálfráðataugakerfið/ANS. Farið verður sérstaklega í notkun nuddbolta til að losa um spennu í vefjakerfi líkamans, trigger-punkta, og samgróninga ásamt því að auka virkni sogæðakerfis og róa taugakerfið.
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist tækni til að tileinka sér kennsluefnið og miðla þekkingu sinni á faglegan og skapandi hátt.
Föstudagur er í formi fyrirlesturs og fræðslu sem við nýtum okkur næstu tvo daga þegar farið er yfir verklega hlutann með nuddboltum og fleiri verkfærum.
INNIFALIÐ Í VERÐI:
Allir Roll Model® Therapy Boltarnir (1 pair each of original Yoga Tune Up® Balls, Therapy Ball Plus, 1 ALPHA, and 1 Coregeous® Ball) og minni blöðrubolti.
Aðgangur að kennslumyndböndum eftir námskeið! Fundur með kennara til að koma sér af stað í kennslu.
Í framhaldi eru einnig í boði ýmsar vinnustofur sérstaklega fyrir þá sem hafa klárað kennaranámskeiðið til að auka tækni og kunnáttu!
Verð: 89.000kr
Hvar: Kirkjulundi 19, Garðabær. G Fit.
Skráning: https://happyhips.is/rmm-kennararettindi/
Advertisement

Event venue

Happy Hips, Kirkjulundur 19, 210 Garðabær, Ísland, Kopavogur, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Discover more events by tag

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events in Kopavogur

Gjafaöskjugerð

Tue, 10 Nov at 03:30 pm Borgarbókasafnið Árbæ, Hraunbæ 119

Kopavogur is happening.

See everything else that’s on — concerts, markets, comedy and more.