#StayHappening
Sun, 08 Nov, 2026 at 04:00 pm UTC+00:00

Ævintýraheimur Astrid Lindgren

  • Salurinn Tónlistarhús · Kopavogur
Salurinn T\u00f3nlistarh\u00fas Publisher / Host Salurinn Tónlistarhús
Share
\u00c6vint\u00fdraheimur Astrid Lindgren
Advertisement
Sögurnar eftir Astrid Lindgren eru eitthvað sem börn á Íslandi hafa alist upp við í marga áratugi. Lína langsokkur, Emil í Kattholti, Maddit og Beta, Bræðurnir Ljónshjarta, Kalli á þakinu, Ronja ræningjadóttir, Lotta í Skarkalagötu og Börnin í Ólátagarði eru persónur sem eru okkur að góðu kunn. Fjölmargar bókanna hafa svo verið aðlagaðar fyrir leikhús eða kvikmyndaðar. Á þessum tónleikum verða flutt lög sem öll þekkja úr sýningum og myndum sem ættu að vekja góða minningar hjá börnum á öllum aldri. Við hvetjum gesti til að klæða sig upp í anda sagnanna og jafnvel sem sín eftirlætis persóna.
Söngvarar eru Daníel E. Arnarson og Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm ásamt nemendum úr söngleikjadeild Dansskóla Birnu Björns af því þessa tónlist er ekki hægt að flytja án barna.
Hljómsveit skipa:
Magnús Þór Sveinsson, hljómborð og hljómsveitarstjórn
Eiríkur Hilmisson, kassagítar
Hjálmar Karl Guðnason, bassi
Ragnar Már Jónsson, blásturshljóðfæri
Sigurður Ingi Einarsson, trommur og slagverk
Yngvi Rafn Garðarsson Holm, gítar
Kynnir og sögumaður: Valgerður Erlingsdóttir
Advertisement

Event venue

Salurinn Tónlistarhús, Hamraborg 6,Kópavogur, Kopavogur, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Discover more events by tag

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events in Kopavogur

Gjafaöskjugerð

Tue, 10 Nov at 03:30 pm Borgarbókasafnið Árbæ, Hraunbæ 119

Kopavogur is happening.

See everything else that’s on — concerts, markets, comedy and more.