#StayHappening
Thu, 22 Oct, 2026 at 05:00 pm UTC+00:00

Framtíð í mótun - Fyrsti viðburður ungmennaráðs Festu

  • Arion Banki · Reykjav
Festa - mi\u00f0st\u00f6\u00f0 um sj\u00e1lfb\u00e6rni Publisher / Host Festa - miðstöð um sjálfbærni
Share
Framt\u00ed\u00f0 \u00ed m\u00f3tun - Fyrsti vi\u00f0bur\u00f0ur ungmennar\u00e1\u00f0s Festu
Advertisement
⭐ Forseti Íslands tekur þátt í fyrsta viðburði ungmennaráðs Festu sem fer fram í höfuðstöðum Arion Banka þann 22. október ⭐
Með viðburðinum vill ungmennaráðið hefja öflugt samtal milli ungs fólks og leiðtoga atvinnulífsins um framtíð vinnumarkaðarins, væntingar og tækifæri með sjálfbærni að leiðarljósi. Við heyrum fróðleg erindi, eigum sófaspjall við forseta Íslands, tökum þátt í skemmtilegum samtölum og sköpum mikilvæg tengsl.
Húsið opnar klukkan 16:45 og dagskrá hefst klukkan 17:00
📝 Dagskrá:
🔸 Starfslýsing óskast - sjálfbærni, óvissa og störf framtíðarinnar: Þorsteinn Kári Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður sjálfbærni hjá JBT Marel og fyrrverandi varaformaður Festu
🔸 Þú þarft ekki stóran titil til að hafa mikil áhrif: Lára Kristín Skúladóttir, leiðtogaþjálfi, ráðgjafi og stofnandi Co-Create
🔸 Sófaspjall með forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur
🔸 Léttar veitingar og tengslamyndun þar sem m.a. Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónus, Hrefna Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri CreditInfo, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins og stjórnarmeðlimir Festu verða tilbúin að taka spjallið við gesti.
Ungmennaráð Festu var stofnað í janúar á þessu ári sem vettvangur ungs fólks sem vill hafa áhrif á sjálfbæra umbreytingu í íslensku atvinnulífi og samfélagi. Í ungmennaráði sitja einstaklingar á aldrinum 18 - 28 ára, sem starfa hjá aðildarfélögum Festu og eiga það sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á sjálfbærni og samfélagsmálum.
Við vonumst til að sjá sem flest!
Skráning er nauðsynleg hér: https://www.sjalfbaer.is/vidburdir#calendar-8b48bc77-0a98-485a-9910-6d4f255724b1-event-51cfbef0-2c6e-41c7-8790-1f939ce26d96
Advertisement

Event venue

Arion Banki, Borgartún 17, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events