Advertisement
See English belowNýlendustefna og námuvinnsla á Grænlandi: Auðlindanýting, réttindasvipting og frásagnarvald
Fimmtudaginn 22. október 2026 heldur Naja Dyrendom Graugaard, dósent við Kaupmannahafnarháskóla erindi á vegum RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands.
Í erindinu verður fjallað um sögu danskrar nýlendustefnu á Grænlandi (Kalaallit Nunaat), nýtingu náttúruauðlinda og átök um þekkingu og frásagnarvald Inúíta.
Þótt athygli hafi í auknum mæli beinst að stöðu og kúgun Inúíta í sögu danskrar nýlendustefnu á Grænlandi einkennist opinber umræða í Danmörku enn að verulegu leyti af þeirri hugmynd að dönsk yfirráð hafi fyrst og fremst stuðlað að uppbyggingu og efnahagslegum framförum. Saga orsugiak, sem danskir jarðfræðingar nefndu krýólít, dregur þessa söguskoðun í efa og varpar ljósi á efnahagslega hagsmuni og nýtingu náttúruauðlinda á nýlendutímanum.
Í grænlensk-dönsku heimildarmyndinni Orsugiak – The White Gold of Greenland, sem kom út árið 2025, er þessi saga dregin fram. Myndin, sem sýnd var hér á landi á vegum RIKK í mars 2025, vakti harðar deilur og var tekin úr sýningu hjá danska ríkisútvarpinu aðeins nokkrum dögum eftir útgáfu hennar.
Viðbrögðin vöktu jafnframt spurningar um það hverjir hafa vald til að segja sögu nýlendutímans og hvaða þekking og reynsla er talið ákjósanlegt að segja frá.
Í fyrirlestrinum fjallar Naja Dyrendom Graugaard um það hvernig nýlendutengsl móta enn viðhorf til þekkingar og frásagna Inúíta. Hún byggir meðal annars á eigin reynslu sem rannsakandi af dönskum og grænlenskum inúítaættum og þátttakandi í heimildarmyndinni. Með hliðsjón af hugtakinu þekkingarfræðilegt eignarnán (e. epistemic dispossession) skoðar hún hvernig hægt er að svipta samfélög yfirráðum yfir eigin þekkingu og sögu og hvers vegna frásagnarvald Inúíta er svo mikilvægur þáttur í afnýlenduvæðingu.
Naja Dyrendom Graugaard er dósent við Center for Gender, Sexuality & Difference við Kaupmannahafnarháskóla. Rannsóknir hennar snúa að nýlendutengslum Danmerkur og Grænlands, afnýlenduvæðingu, þekkingarkerfum inúíta og reynslu Grænlendinga.
Hún hlaut Emmu Goldman-verðlaunin árið 2025.
Fyrirlesturinn fer fram fimmtudaginn 22. október 2026 á milli kl. 12 og 13 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku.
//
Cryolite colonialism: Extraction, dispossession, and narrative sovereignty in Kalaallit Nunaat (Greenland).
RIKK – Institute for Gender, Equality and Difference at the University of Iceland – welcomes Naja Dyrendom Graugaard, Associate Professor at the University of Copenhagen, for a lecture on Danish colonial extraction in Kalaallit Nunaat (Greenland), the politics of historical knowledge, and Inuit narrative sovereignty.
While Denmark's colonial history in Kalaallit Nunaat has received increasing public attention, dominant narratives continue to frame Danish presence through ideas of care, development, and economic benevolence. The history of orsugiak, renamed cryolite by Danish geologists, challenges these narratives by revealing how resource extraction and economic exploitation shaped Danish colonialism.
In 2025, the Kalaallit-Danish documentary Orsugiak – The White Gold of Greenland brought this history into public debate. Its subsequent removal from the Danish Broadcasting Corporation's platform, amid controversy over its interpretation of colonial economics, raised wider questions about whose knowledge and historical narratives are recognised as legitimate.
Drawing on her involvement in the documentary, Graugaard explores how colonial power relations continue to shape the production and recognition of knowledge. Through the concept of epistemic dispossession, she examines the delegitimisation of Inuit perspectives and argues for Inuit narrative sovereignty as a means of reclaiming the authority to tell Inuit histories on Inuit terms.
Naja Dyrendom Graugaard is an Associate Professor at the Center for Gender, Sexuality & Difference, University of Copenhagen. A Danish-Kalaaleq Inuk researcher, her work engages with colonial relations, Indigenous knowledge systems, Kalaallit lived experiences, and decolonial and intersectional perspectives.
She is a recipient of the 2025 Emma Goldman Award and Fellowship.
Date: Thursday 22 October 2026
Time: 12:00–13:00
Venue: Lecture Hall, National Museum of Iceland.
The event is held in English and is open to everyone.
Advertisement
Event venue
Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland, Suðurgata 41, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland
Tickets