Advertisement
Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með haustdadagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 21. október kl. 20:00 í Kaldalónssal, Hörpu. Á tónleikunum kemur hljómsveitin Multiverse sem er kvartett trommuleikarans og tónskáldsins Scotts McLemore. Með honum leika Andrés Þór á gítar og pedal steel, Hilmar Jensson á gítar og Nicolas Moreaux á kontrabassa. Efnisskráin er öll frumsamin, laglínudrifin tónlist sem gefur spunanum lausan tauminn. Gítararnir tveir kallast á og vefa saman ólíka hljóðheima, og sveitin fer sínar eigin leiðir hverju sinni. Undanfarið hefur Andrés Þór lagt sífellt meiri áherslu á pedal steel-gítarinn, sem ljær tónlistinni draumkenndan og síbreytilegan blæ og teygir hljóm sveitarinnar í nýjar áttir.Scott McLemore‘s Multiverse
The quartet led by drummer and composer Scott McLemore. Joining him are Andrés Þór on guitar and pedal steel, Hilmar Jensson on guitar, and Nicolas Moreaux on double bass. The repertoire consists entirely of original, melody-driven music that leaves plenty of room for improvisation. The two guitarists engage in a musical dialogue, weaving together contrasting sonic landscapes, while the quartet follows its own path from one moment to the next. In recent years, Andrés Þór has increasingly focused on the pedal steel guitar, bringing a dreamlike and ever-changing quality to the music while extending the quartet’s sonic palette in new directions.
Andrés Þór Gunnlaugsson, guitar
Hilmar Jensson, guitar
Nico Moreaux, bass
Scott McLemore, drums
The concert starts at 20 @ Kaldalón, Harpa Concert House. Tickets ISK 5200.
Spennandi haustdagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í mðjan desember. Múlinn er að á sínu 29. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.
Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.
Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna.
Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 5200 og 3800 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu
Advertisement
Event venue
Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland
Tickets