#StayHappening
Thu Oct 22 2026 at 06:00 pm to 09:00 pm UTC+00:00

Listasýning ´The Wilds´ eftir Jaclyn Poucel Árnason

  • Smiðjuvellir 8, 300 Akraneskaupstaður, Ísland · Reykjav
Jaclyn \u00c1rnason Art Publisher / Host Jaclyn Árnason Art
Share
Listas\u00fdning \u00b4The Wilds\u00b4 eftir Jaclyn Poucel \u00c1rnason
Advertisement
Allir eru velkomnir á opnun listasýningar minnar „The Wilds“ – boðið verður upp á léttar veitingar og frábæra stemningu.
´The Wilds´ (í villtri náttúru / Í óbyggðum) eru svæði í náttúrunni sem eru ósnortin af mannavöldum; staðir þar sem dýralíf, tré, blóm og gróður þrífast án afskipta manna. Þessi svæði búa yfir tignarlegum blæ og þegar við mennirnir komumst í snertingu við þau upplifum við eins konar villt frelsi og frið; tónlistina í laufblöðunum sem strjúkast hvert við annað í vindinum, dýr sem nemur staðar til að hlusta á vatnið streyma niður eftir ánni, býfluguna sem finnur hvíld á enda blómablaðs.
Í þessum síbreytilega tækniheimi hafa mörg okkar gleymt því hvernig það er að stíga út í náttúruna og finna fyrir umbreytandi mætti hennar. Að sjá hið samræmda jafnvægi dýralífsins, laust við þá eyðileggingu sem mennirnir hafa valdið.
Mig langaði að skapa verk sem endurspeglaði tengsl okkar við þessi villtu og fögru svæði – að við eigum heima í náttúrunni, fremur en þau tengsl sem byggjast á hagnaði af eyðileggingu hennar. Þetta er eins konar ástarbréf til öræfanna, áminning um að við megum ekki gleyma mikilvægi náttúrunnar, við megum ekki gleyma því sem hún hefur gert fyrir okkur. Við verðum að vernda þessi svæði og þau djúpu tengsl sem við eigum við þau.
Advertisement

Event venue

Smiðjuvellir 8, 300 Akraneskaupstaður, Ísland, Smiðjuvellir 8, 300 Akraneskaupstaður, Ísland, Reykjav, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events