#StayHappening
Sat, 31 Oct, 2026 at 09:00 pm UTC+00:00

áttir

  • Fríkirkjan í Reykjavík · Reykjav
Hei\u00f0a \u00c1rna Publisher / Host Heiða Árna
Share
\u00e1ttir
Advertisement
áttir eftir Lilju Maríu Ásmundsdóttir er tónverk fyrir rödd, rafhljóð og hljóðskúlptúra, samið sérstaklega fyrir Heiðu Árnadóttur. Verkið var upphaflega flutt á vorjafndægri árið 2026, þegar dagur og nótt eru nánast jafn löng. Sá tími árs markar jafnvægi og umbreytingu sem endurspeglast í tónmáli og efnistökum verksins. Verkið er nú flutt á Óperudögum.
Verkið er byggt á grafískri nótnaskrift þar sem ljósmyndir af sömu plöntunni á mismunandi tímum árs eru notaður sem grunnur fyrir grafísku nóturnar. Upphafskafli verksins er byggður á ljósmyndum af plöntunni sem teknar voru í febrúar (2023), sem eins konar inngangur inn í vorjafndægrið. Í öðrum kafla verksins eru notaðar ljósmyndir sem teknar voru í kringum vorjafndægur (2023). Lokakafli verksins er síðan byggður á ljósmyndum sem teknar voru að sumri til (2023).
Innblástur verksins kemur frá himingeiminum og veðráttu, en einnig frá hugmyndum um sýnileika og ósýnileika, hvernig hið efnislega og hið óáþreifanlega birtist í samspili. Lilja hannaði hljóðskúlptúra úr mismunand efnivið sem staðsettir verða á mismunandi stöðum í Fríkirkjunni. Þessir skúlptúrar verða virkjaðir af Heiðu á ákveðnum stöðum í verkinu og skapa þannig lifandi samtal milli raddar, rýmis og efnis.
Ókeypis inn og öll velkomin
Þessir tónleikar eru styrkir af Menningarsjóði FIH og Fríkirkjunni í Reykjavík
Advertisement

Event venue

Fríkirkjan í Reykjavík, Fríkirkjuvegur 5, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events

HÁTÍÐARGALA: NOC + ELJA

Sat, 31 Oct at 06:00 pm Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre