#StayHappening
Sat, 31 Oct, 2026 at 12:00 pm UTC+00:00

EX LIBRIS II – Systur

  • Arngrímsgata 5, 107 Reykjavík, Iceland · Reykjav
\u00c1rnastofnun Publisher / Host Árnastofnun
Share
EX LIBRIS II \u2013 Systur
Advertisement
Tónleikarnir fara fram á bókasafninu í Eddu og tilheyra tónleikaröðinni Ex Libris.
Systurnar Gunnhildur og Þóra Einarsdætur hafa um áratugaskeið verið áberandi í íslensku og alþjóðlegu tónlistarlífi, hvor á sínu sviði.
Hörpuleikarinn Gunnhildur Einarsdóttir hefur komið fram sem einleikari, kammermúsíkant og spunatónlistarkona víða um Evrópu og Bandaríkin. Hún er stofnandi og listrænn stjórnandi kammerhópsins Adapter og hefur frumflutt hundruð nýrra tónverka. Hún hefur leikið með mörgum af fremstu hljóð- og kammerhópum Evrópu, þar á meðal Ensemble Modern, Ensemble Recherche og Klangforum Wien, auk þess að koma fram sem einleikari með hljómsveitum og á virtum tónlistarhátíðum.
Þóra Einarsdóttir hefur átt farsælan alþjóðlegan feril sem óperu- og tónleikasöngkona. Hún hefur sungið á sviðum óperuhúsa og tónleikastaða víða um Evrópu og komið fram með fjölmörgum sinfóníu- og kammerhljómsveitum. Meðal hlutverka hennar eru helstu kvenhlutverk í óperum Mozarts, Verdis, Puccinis og Strauss auk þátttöku í frumflutningi nýrra verka. Jafnframt hefur hún lagt sérstaka rækt við ljóðasöng og flutning kirkjutónlistar.

Efnisskrá tónleikanna:
Þótt leiðir systranna hafi oft legið hvor í sína áttina hefur tónlistin ávallt verið sameiginlegur þráður. Á þessum tónleikum sameina systurnar krafta sína í efnisskrá sem stendur þeim báðum nærri, franskri tónlist fyrir söng og hörpu.
Í verkum eftir Fauré, Ravel, Tournier og fleiri meistara franskrar tónlistar mætast ljóðræn fegurð, fágaðir litir og hið einstaka samtal söngraddar og hörpu.
Tónleikarnir eru jafnframt sérstakt tækifæri fyrir þær til að deila með áheyrendum tónlist sem hefur veitt þeim innblástur um árabil og endurspeglar bæði fjölbreytta reynslu þeirra sem flytjenda og þá gleði sem felst í því að skapa tónlist saman.
Aðgangseyrir 2.500 kr.

Um tónleikaröðina Ex Libris:
Verið velkomin að hlýða á kammertónlist í hinum glæsilega bókasal Eddu í vetur.
Í tónleikaröðinni er annars vegar lögð áhersla á samtímatónlist og hins vegar á nýsköpun í flutningi eldri tónlistar, bæði þjóðlegrar tónlistar og barokks.
Allir tónleikarnir fara fram í bókasafni Eddu á laugardögum og hefjast klukkan 12 og standa í tæpa klukkustund.
Dagskrá vetrarins: https://arnastofnun.is/is/ex-libris-tonleikarod
Advertisement

Event venue

Arngrímsgata 5, 107 Reykjavík, Iceland, Arngrímsgata 5, 107 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events

Portrett: Kurt Weill

Fri, 30 Oct at 08:15 pm Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

HÁTÍÐARGALA: NOC + ELJA

Sat, 31 Oct at 06:00 pm Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

áttir

Sat, 31 Oct at 09:00 pm Fríkirkjan í Reykjavík