Advertisement
ENGLISH BELOWÓperudagar í samstarfi við Herning Opera Festival bjóða til stórglæsilegra tónleika í flutningi Nordic Opera Choir og kammersveitarinnar Elju undir stjórn Ragnheiðar Ingunnar Jóhannsdóttur. Á efnisskránni er fjölbreytt dagskrá þar sem nokkur af þekktustu kóratriðum óperusögunnar munu hljóm, ásamt einsöngsverkum og sjaldgæfari óperuperlum.
Á tónleikunum má meðal annars heyra Kór sígaunanna (Il Trovatore) og Va, pensiero (Nabucco) eftir Verdi, þekktar aríur á borð við Habanera úr Carmen og hinn töfrandi Hummandi kór úr Madömu Butterfly. Á dagskránni eru einnig dásamleg verk eftir m.a. Alexander Borodin, Kaiju Saariaho og Helenu Munktell.
Óperudagar fagna 10 ára afmæli í ár og er hátíðargalað liður í að halda upp á þann merka áfanga!
Nordic Opera Choir er norrænn óperukór skipaður 30 ungum atvinnusöngvurum og söngnemum á aldrinum 18–35 ára frá öllum Norðurlöndunum. Kórinn var stofnaður að frumkvæði Den Jyske Sangskole í Herning árið 2023 með það að markmiði að efla starfsvettvang ungra klassískra söngvara og skapa öflugt faglegt tengslanet þvert á Norðurlöndin.
Á hverju ári koma söngvararnir saman til æfinga og tónleikahalds undir leiðsögn norrænna stjórnenda og leiðbeinenda. Kórinn starfar með hljómsveitum og tónlistarhátíðum á Norðurlöndunum og veitir þátttakendum tækifæri til að þróast listrænt og faglega í öflugu og faglegu norrænu samstarfi.
Verkefnið er að stærstum hluta fjármagnað af A.P. Møller-sjóðnum í Danmörku. Íslenskir styrktaraðilar Óperudaga sem styðja við þetta verkefni eru Tónlistarsjóður, Reykjavíkurborg, Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Styrktarsjóður Rutar Hermanns, Ýlir tónlistarsjóður og Kaffi Ó-le.
Fram koma:
Nordic Opera Choir
Elja kammersveit
Einsöngvarar
Stjórnandi: Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir
ENGLISH
Reykjavík Opera Days, in collaboration with Herning Opera Festival, presents a spectacular gala concert featuring the Nordic Opera Choir and ELJA Chamber Ensemble, conducted by Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir.
The programme offers a rich and dynamic selection of music, bringing together some of the most celebrated choruses in operatic history alongside solo works and lesser-known, exciting gems.
Audiences will experience everything from Verdi’s Gypsy Chorus from Il Trovatore and Va, pensiero from Nabucco to beloved arias such as the Habanera from Carmen and the enchanting Humming Chorus from Madama Butterfly. The programme also features magnificent works by composers including Alexander Borodin, Kaija Saariaho and Helena Munktell.
Reykjavík Opera Days celebrates its 10th anniversary this year, and this Festival Gala forms part of the celebrations marking this special milestone.
Nordic Opera Choir is a Nordic opera choir bringing together 30 young professional singers and conservatoire students aged 18–35 from across the Nordic countries. The choir was initiated by Den Jyske Sangskole in Herning in 2023 with the aim of supporting the professional development of young classical singers and creating a strong professional network across the Nordic region.
Each year, the singers come together for intensive rehearsals and performances under the guidance of Nordic conductors and mentors. The choir collaborates with orchestras and music festivals throughout the Nordic countries, offering participants the opportunity to develop artistically and professionally through a vibrant, high-level Nordic collaboration.
The project is primarily funded by the A.P. Møller Foundation in Denmark. Icelandic funders and partners of Reykjavík Opera Days supporting this project include the Icelandic Music Fund, the City of Reykjavík, the Ministry of Culture, Innovation and Higher Education, the Rút Hermann Memorial Fund, Ýlir Music Fund and Kaffi Ó-le.
Performers:
Nordic Opera Choir
ELJA Chamber Ensemble
Soloists
Conductor: Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir
Advertisement
Event venue
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland
Tickets