Advertisement
Í hádeginu alla þriðjudaga yfir vetrar- og vormánuði býður Þjóðminjasafn Íslands upp á viðburði af ýmsu tagi s.s. bíósýningar, leiðsagnir og fyrirlestra.Þriðjudaginn 17. nóvember kl. 12 mun Guðrún Hildur Rosenkjær sagnfræðingur og meistari í kjóla- og búningasaum mun halda fyrirlestur um einstakan heimanmund Þórunnar Ólafsdóttur frá árinu 1780, er hún giftist Hannesi Finnssyni biskupi. Saga Þórunnar er að mörgu leiti einstök og það er einnig sá fatnaður og skart sem lýst er í heimanmundi hennar. Hildur veltir upp spurningum um merkingu og mikilvægi búningaeignar Þórunnar sem hún byggir á rannsóknum á fatnaði og búningum frá 18. öld. Til að útskýra umfang og mikilfengleika búninganna mun Hildur sýna endurgerðir af slíkum fatnaði og fleira áhugavert.
Guðrún Hildur hefur um árabil helgað störf sín rannsóknum, endurgerð og miðlun íslenskra búninga. Í verkum sínum sameinar hún fræðilega heimildarýni og verklega rannsóknaraðferð þar sem hún endurgerir búninga, efni og vinnuaðferðir til að varpa nýju ljósi á þætti sem ritaðar heimildir einar ná ekki að skýra.
Að erindinu loknu mun Hildur leiða útsaumssamveru í barna- og fjölskyldurýminu á fyrstu hæð sem ber yfirskriftina Útsaumssamvera – Settu spor þín í blómagarð Guðrúnar en þar munu gestir kynnast blómstursaumi og leggja sitt af mörkum til sameiginlegs handverks sem verður varðveitt á safninu.Aðgöngumiði í safnið gildir á viðburðinn.
Athugið að aðgöngumiði jafngildir árskorti og veitir aðgang á alla viðburði og sýningar á vegum safnsins í ár frá kaupum. Ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.
-----
Every Tuesday at lunchtime throughout the winter and spring months, the National Museum of Iceland hosts a variety of events, including film screenings, guided tours and lectures.
On Tuesday, 17 November at 12:00, Guðrún Hildur Rosenkjær, historian and master dressmaker and costume maker, will give a lecture on the remarkable dowry of Þórunn Ólafsdóttir from 1780, when she married Bishop Hannes Finnsson.
Þórunn's story is extraordinary in many ways, as are the clothing and jewellery described in her dowry. Drawing on her research into 18th-century clothing and traditional costumes, Guðrún Hildur will explore the meaning and significance of Þórunn's remarkable collection of garments. To illustrate the scale and splendour of these costumes, she will present historical reconstructions of similar clothing, along with other fascinating examples.
For many years, Guðrún Hildur has dedicated her career to researching, reconstructing and interpreting Icelandic traditional costumes. Her work combines scholarly analysis of historical sources with hands-on research, recreating garments, textiles and traditional techniques to shed new light on aspects of history that written records alone cannot fully explain.Following the lecture, Guðrún Hildur will lead an embroidery gathering in the children's and family area on the first floor, entitled Embroidery Gathering – Add Your Stitches to Guðrún's Flower Garden. Visitors will have the opportunity to discover traditional floral embroidery and contribute to a collaborative textile project that will be preserved at the museum.
Please note that the lecture will be in Icelandic.
Admission to the event is included in the museum entrance fee. Please note that every admission ticket also serves as an annual pass, providing access to all exhibitions and events organised by the museum for one year from the date of purchase. Admission to exhibitions and events is free for children under 18.
Advertisement
Event venue
Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland, Suðurgata 41,Reykjavík, Iceland, Reykjav
Tickets