#StayHappening
Tue Nov 17 2026 at 08:00 pm to 10:00 pm UTC+00:00

Upprásin | Spouses, Brenninetla, ÞESAL

  • Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre · Reykjav
Harpa t\u00f3nlistar- og r\u00e1\u00f0stefnuh\u00fas \/ Harpa Concert Hall and Conference Centre Publisher / Host Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre
Share
Uppr\u00e1sin | Spouses, Brenninetla, \u00deESAL
Advertisement
Á þessum tónleikum koma fram Spouses, Brenninetla og ÞESAL.
Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Rás 2, stendur fyrir Upprásinni, tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur.
Upprásin fer nú fram fjórða árið í röð og munu samtals 27 hljómsveitir koma fram, þrjár á hverju tónleikakvöldi. Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar. Miðaverð er aðeins 2000 kr. en hægt er að leggja til hærri upphæð í miðasöluferlinu sem rennur beint til listafólksins.
**
Spouses er tónlistarverkefni kanadíska tónlistarmannsins Joel Durksen en hann hefur verið búsettur á Íslandi frá 2023. Hann sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu, I Could Be Your Dog, í maí 2026 en platan var tekin upp í gömlu hesthúsi sem Joel Durksen hefur umbreytt í hljóðver. Áður en Joel flutti til Íslands hafði hann starfað með tónlistarfólki svo sem með Brad Stank, Dent May og Two Blinks I Love You. Undanfarin ár hefur hann einbeitt sér að eigin lagasmíðum.
**
Brenninetla er djasstríó skipað Kjartani Huga á saxófón, Stígi Grendal á gítar og bassa og Hinriki Torfa á trommur. Hljómsveitin byrjaði sem spunadúó hjá Kjartani og Hinriki, en þegar þeir fengu Stíg með í verkefnið þróaðist hljómsveitin í kraftmikið tríó sem vinnur með allskonar hugmyndir. Tónlist sveitarinnar byggir á djassi og frjálsum spuna en sækir líka áhrif í alls kyns aðrar áttir. Tríóið leggur upp úr samstarfinu og leyfir tónlistinni að þróast náttúrulega í augnablikinu svo engir tónleikar verði eins. Brenninetla lenti í 2. sæti á Músíktilraunum 2026, þar sem sveitin vakti athygli fyrir spunadrifinn og kraftmikinn flutning. Þar hlaut Stígur Grendal einnig verðlaun sem besti gítarleikari keppninnar.
**
Poppbandið ÞESAL er ekki hefðbundin hljómsveit heldur upplifun sem minnir á sýrutripp. Það er teiknimyndageimveran Marens sem stýrir ferðinni með geimskipinu sínu og handteiknuðu myndefni. Bandið sérhæfir sig í grípandi hljómheimum, húmorískum textasmíðum og rafmagnaðri sviðsorku enda er bandið skipað þremur prófessional partýljónum sem eru ófeimin við að blanda saman tónlist, early 2000s teiknimyndastíl og dansstemmningu í eina risastóra kjarnorkupartýsprengju. ÞESAL skipa Ómar Vídó, Kata Backmann og Guðmundur Elí.
*****
This concert will feature Spouses, Brenninetla and ÞESAL.
Harpa, in collaboration with the Reykjavík Music City and Rás 2, is hosting Upprásin, a concert series dedicated to grassroots Icelandic music, across musical genres. Upprásin is now taking place for the fourth year in a row and a total of 27 bands will perform, three on each concert night.
Ticket prices are only 2000 kr. but it is possible to contribute a higher amount during the ticket sales process, which will go directly to the artists.
*
Spouses: Born in Canada, Joel Durksen cut his teeth in the UK’s music scene, performing and recording with numerous bands before relocating to rural Iceland in 2023. Despite a growing profile as a multi-instrumentalist for Brad Stank, Dent May, and Two Blinks I Love You, he found himself increasingly disconnected, unsure whether he was moving closer to his own voice or further from it.
What followed was Spouses. Based on a horse-breeding farm in South Iceland, Durksen wrote and recorded the debut album, I Could Be Your Dog (released 22 May 2026 via Kálfholt Records), largely alone in a small loft above a stable (Kálfholt Studios). Mixed by Finn Howells at Alan Moulder’s A.M.C. Studios, the album blends the guitar-driven energy of The Bends-era Radiohead with folk and folktronica influences. Songs from the record have received support from The Reykjavik Grapevine, RÚV, The Line of Best Fit, BIRP!, and For The Rabbits.
*
Brenninetla is a jazz trio consisting of Kjartan Hugi (saxophone), Stígur Grendal (guitar and bass), and Hinrik Torfi (drums). The band began as an improvisational duo between Kjartan and Hinrik, but when Stígur joined the project it evolved into a dynamic trio exploring a wide range of musical ideas. Their music is rooted in jazz and free improvisation while drawing inspiration from many other genres and influences. The trio aims to let the music unfold naturally in the moment, ensuring that no two performances are ever the same. Brenninetla placed second in the 2026 Icelandic Music Experiments (Músíktilraunir), where the band gained attention for its energetic, improvisation-driven performances. At the competition, Stígur Grendal also received the Best Guitarist award.
*
ÞESAL is far from a conventional pop band—it's an experience that feels like an acid trip. Guiding the audience through the journey is Marens, a cartoon alien who pilots a spaceship accompanied by hand-drawn visuals. The band specializes in infectious soundscapes, witty lyrics, and electrifying stage energy. Made up of three seasoned party-starters, ÞESAL fearlessly blends music, early-2000s cartoon aesthetics, and dancefloor vibes into one giant explosive celebration. ÞESAL consists of Ómar Vídó, Kata Backmann, and Guðmundur Elí.
Advertisement

Event venue

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events

CELINE DION NOSTALGÍA

Thu, 19 Nov at 08:00 pm Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

HAM - Endalok alls

Fri, 20 Nov at 08:00 pm Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre