Advertisement
🔔 Jólabjöllurnar snúa aftur – og í þetta sinn með splunkunýja tegund af erótík!Sönghópurinn sem hefur glatt, hneykslað og kitlað hláturtaugar landsmanna í meira en áratug býður til stórskemmtilegra jólatónleika fimmtudaginn 19. nóvember kl. 19:30 í Silfurtunglinu í Austurbæjarbíói. 🎄
🎶 Á efnisskránni verður að venju góð blanda af eldri lögum og glænýjum sem hafa fengið hina sérstæðu Jólabjöllumeðferð. Klassísk lög fá nýtt líf, textarnir fara gjarnan þangað sem aðrir þora ekki og fátt, ef nokkuð, er heilagt. 😏
🎁 Að venju verður líka æsispennandi happdrætti með glæsilegum vinningum og hægt verður að næla sér í spennandi varning á staðnum – tilvalið fyrir þau sem eiga allt.
🇮🇸 Allir textar eru á íslensku – öll velkomin. Við bendum þó á að tónleikarnir henta ekki einstaklingum undir 20 ára aldri. 🔥
Komdu og kynntu þér splunkunýja tegund af erótík með Jólabjöllunum – við lofum að jólin verða aldrei söm aftur. 🔔✨
P.S. Ef þú kemst ekki á tónleikana þennan dag verðum við líka með tónleika í Hljómahöll 29. nóvember kl. 19:30. 😉
Advertisement
Event venue
Silfurtunglið, Grettisgata 84, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland
Tickets