Advertisement
Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins boðar til opins fundar um verkefnið "Áfangastaðurinn Elliðaárdalur" þann 9. nóvember kl. 14:30 í húsinu Lækjargata á Árbæjarsafni. Verkefnið byggir á greiningu og samráði við hagaðila með það að markmiði að móta hugmyndir um hvernig megi efla Elliðaárdal sem áfangastað. Niðurstöðurnar nýtast fyrir framtíðarsýn svæðisins í tengslum við ferðaþjónustu ásamt því að nýtast í vinnu Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, m.a. við þróun og markaðssetningu höfuðborgarsvæðisins.
Sem hluti af verkefninu var haldin vinnustofa með hagaðilum í febrúar 2026. Þar var rætt um sérstöðu Elliðaárdals, áhugaverða markhópa og helstu tækifæri og áskoranir svæðisins. Þátttakendur unnu jafnframt hugmyndir að því hvernig mætti efla áfangastaðinn allan ársins hring.
Nú er boðað til opins fundar til að kynna niðurstöður verkefnisins og bjóða til samtals um framhaldið.
Öll sem hafa áhuga á þróun Elliðaárdals sem áfangastaðar eru velkomin, þar með talið íbúar, fyrirtæki í ferðaþjónustu og skyldum greinum og aðrir hagaðilar.
Advertisement
Event venue
Árbæjarsafn / Árbær Open Air Museum, Reykjavík, Iceland
Tickets