#StayHappening
Fri, 23 Oct, 2026 at 04:00 pm UTC+00:00

Vökudagar 2026 - SVO NÆS – listasýning eftir Söru Matt / SarmVerk

  • Stekkjarholt 8, Akranes, Iceland · Reykjavík
Vetrar garn Publisher / Host Vetrar garn
Share
V\u00f6kudagar 2026 - SVO N\u00c6S \u2013 listas\u00fdning eftir S\u00f6ru Matt \/ SarmVerk
Advertisement
Við erum ótrúlega spennt að fá að opna dyrnar að Svo Næs, sýningu á verkum eftir Söru Matt, SarmVerk, í Stekkjarholti 8.
Sýningin er afrakstur tilrauna, forvitni og löngunar til að prófa eitthvað nýtt. Þar má sjá litrík flosverk ásamt töskum unnum úr flosi og ýmsum ólíkum efnivið sem hefur fengið nýtt líf.
Sum verkin hófust sem ákveðin hugmynd, önnur urðu nánast fyrir tilviljun. Sameiginlegt með þeim er þó að Sara leyfir innsæinu að ráða för, að prófa, fikta, breyta og sjá hvað gerist.
Svo Næs er því augnabliksmynd af sköpuninni eins og hún er akkúrat núna.
Að þora að prófa sig áfram, treysta innsæinu og leyfa hlutunum að verða að einhverju skrítnu, skemmtilegu og… bara svo næs.
Stekkjarholt 8 - Vetrar Garn & Kyrrð Knit
🗓️ 20. október | 18:00–21:00
🗓️ 23. október | 16:00–19:00
🗓️ 24. október | 12:00–19:00
Við hlökkum til að taka á móti ykkur og gefa ykkur tækifæri til að skoða verkin, spjalla og njóta stemningarinnar með okkur.
Verið hjartanlega velkomin!
Advertisement

Event venue

Stekkjarholt 8, Akranes, Iceland, Stekkjarholt 8, 300 Akraneskaupstaður, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events in Reykjavík

Reykjavík is happening.

See everything else that’s on — concerts, markets, comedy and more.