Advertisement
Halla Tómasdóttir og Cass R. Sunstein í samtaliFimmtudagur 22. október 2026 kl. 16:00
Hátíðasalur í Aðalbyggingu Háskóla Íslands
Við gefum samfélagsmiðlum tíma okkar og athygli. Hvað fáum við í staðinn og hvernig getum við látið tæknina vinna betur með okkur?
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Harvard-prófessorinn Cass R. Sunstein, höfundur nýútkomnu bókarinnar The Price of Happiness og meðhöfundur alþjóðlegu metsölubókarinnar Nudge, ræða samfélagsmiðla, hamingju og frelsið til að stjórna eigin tíma. Hvers vegna getur verið svo erfitt að yfirgefa miðla sem allir aðrir nota? Og hvað gæti breyst ef við tækjum höndum saman?
Þau ræða hvernig sjónarmið ungs fólks geta mótað stafrænt umhverfi framtíðarinnar, hverju við viljum gefa meira rými í daglegu lífi og hvaða lærdóm samfélagsmiðlar geta veitt okkur þegar gervigreind fær sífellt stærra hlutverk í lífi okkar.
Komdu í Hátíðasal eða fylgstu með í streymi.
Samtalið fer fram á ensku og öll eru velkomin.
Advertisement
Event venue
Háskóli Íslands, Sæmundargötu 2,Reykjavík, Iceland
Tickets