#StayHappening
Sat Oct 10 2026 at 10:00 am to 11:30 am UTC+00:00

VÆRÐ & MILDI - Jóga · Tónheilun · Öndun · Djúpslökun með Gullu og Lovísu

  • Bolholt 4, 105 Reykjavíkurborg, Ísland · Reykjavík
Lov.E Yoga & Heilun Publisher / Host Lov.E Yoga & Heilun
Share
V\u00c6R\u00d0 & MILDI - J\u00f3ga \u00b7 T\u00f3nheilun \u00b7 \u00d6ndun \u00b7 Dj\u00fapsl\u00f6kun me\u00f0 Gullu og Lov\u00edsu
Advertisement
Værð og mildi
Opnir jóga- og tónheilunartímar á laugardögum kl. 10:00–11:30
Bolholt 4 · 4. hæð
4800 kr. tíminn
Rými til að hægja á, sleppa takinu og bara vera. �
Meðvituð öndun og mjúkt jógaflæði.
Lifandi tónheilun sem fylgir þér í gegnum allan tímann.
30 mínútna leidd djúpslökun í lokin.
Með Guðlaugu, jógakennara hjá Hjartaheimum, og Lovísu, tónheilara hjá Lov.E Yoga & Heilun.
Þú skráir þig í hvern tíma fyrir sig.
Nánari upplýsingar og skráning:
https://www.loveyoga.is/service-page/v%C3%A6r%C3%B0-mildi
Við leyfum öndun, hreyfingu, hljóði og djúpri hvíld að vinna saman og skapa rými þar sem þú getur sleppt takinu og bara verið.
Öndunin er rauði þráðurinn:
Við byrjum hvern tíma á um 10 mínútna djúpri þrefaldri öndun, Dirgha Pranayama. Við leyfum andardrættinum að fylla lungun í þremur „svæðum“ – maga, rifbeinum og efri hluta brjóstkassa. Á útöndun notum við Ujjayi, eða haföndun, sem skapar mjúkt og djúpt hljóð, svolítið eins og öldur sjávar. Með rólegum og meðvituðum andardrætti hægjum við á, slökum á líkamanum og færum athyglina frá ytra áreiti og inn á við.
Mýkt og hreyfing:
Upphitunin er mjúk og róleg og miðar að því að vekja líkamann, koma hita og blóðflæði af stað og losa um þá spennu sem hefur safnast upp yfir daginn.
Við mýkjum mjaðmir og hrygg og gefum sérstakt rými fyrir háls, axlir og kvið – svæði þar sem við finnum oft fyrir spennu.
Í Raja/Ashtanga-jóga vinna öndun og hreyfing saman. Við förum í gegnum jógastöður í flæði og leyfum Ujjayi-önduninni að fylgja okkur í gegnum iðkunina.
Áherslan er ekki á að gera allt fullkomlega, heldur að hlusta á líkamann, styrkjast, mýkjast og skapa meira rými.
Hreyfingin verður þannig eins konar hugleiðsla á hreyfingu – hugurinn róast, athyglin færist inn á við og við tengjumst líkamanum betur.
Lifandi tónheilun – allan tímann:
Tónheilunin flæðir með þér í gegnum allan tímann. Lifandi hljóð frá tónheilunarskálum, gongi og ýmsum hljóðfærum vefjast inn í öndunina, hreyfinguna og hvíldina. Hljómurinn fyllir rýmið og gefur þér tækifæri til að hlusta, finna og sleppa takinu.
Stundum er hljóðið bjart og létt.
Stundum djúpt og jarðtengt.
Þú þarft ekkert að gera.
Finna · Anda · Leyfa
Öndun sem leið inn á við:
Eftir jógaiðkunina snúum við aftur að önduninni með Anuloma Viloma, eða víxlöndun. Við öndum til skiptis í gegnum hægri og vinstri nös og leyfum andardrættinum að verða hægum, jöfnum og meðvituðum.
Við söfnum athyglinni, róum hugann og leyfum líkamanum smám saman að færa sig úr virkni yfir í ró.
Djúp hvíld:
Í lok hvers tíma tekur við 30 mínútna leidd djúpslökun. Þú leggst undir teppi, með kodda og augnpúða.
Öndunin verður rólegri.
Líkaminn fær að þyngjast.
Hugurinn fær að hvílast.
Tónheilunin heldur áfram að flæða um rýmið á meðan þú sekkur inn í djúpa hvíld.
Hljóðið, öndunin og leiðslan skapa umgjörðina.
Hér er rými til að leyfa þér að taka á móti – hvíldinni, hljóðinu, andardrættinum og sjálfum þér.
Leiðbeinendur:
Gulla Jógakennari
Lovísa Tónheilari
Advertisement

Event venue

Bolholt 4, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Bolholt 4, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events in Reykjavík

Reykjavík is happening.

See everything else that’s on — concerts, markets, comedy and more.