Advertisement
Í næsta opna leshring Hannesarholts leiðir Soffía Auður Birgisdóttir umræður um skáldsöguna Orlandó eftir Virginiu Woolf. Íslensk þýðing Soffíu Auðar á Orlandó kom út árið 2017 en margir telja bókina skemmtilegustu bók Woolf. Orlandó er svo sannarlega langt á undan tímanum hvað varðar hugmyndir um kyn, kynhlutverk og kyngervi. Hægt verður að kaupa bókina á staðnum á góðu verði.Öll velkomin, hvort sem þið þekkið bókina eða ekki. Leshringir í Hannesarholti eru leiddir af sjálfboðaliðum. Ókeypis inn. Leshringurinn verður haldinn í veitingastofum Hannesarholts. Aðgengi til fyrirmyndar, með pallalyftu í útitröppum.
Advertisement
Event venue
Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland, Grundarstígur 10, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets