#StayHappening
Sun Oct 11 2026 at 04:00 pm to 06:00 pm UTC+00:00

Darlingarnir taka Clapton og kó á íslensku

  • Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland · Reykjavík
Hannesarholt Publisher / Host Hannesarholt
Share
Darlingarnir taka Clapton og k\u00f3 \u00e1 \u00edslensku
Advertisement
Darlingarnir eru miklir íslenskumenn svo þeir drifu sig í það gustugaverk að snara nokkrum lögum Claptons, Bítlanna, The Eagles og fleiri á okkar ylhýru. Ekki nóg með það heldur hafa mörg lögin verið staðfærð, þá aðallega á Bíldudal, þannig að Penny Lane verður að Vegamótum og My Michelle verður að Sirrý litlu. Ekki má svo gleyma verbúðinni á Dalbraut þar sem ýmislegt gerðist einsog sagt er frá í laginu sem The Eagles gerði frægt undir nafninu Hotel California. Einnig bregða þeir fyrir sig suður-amerískum söng, í anda Buena Vista Social Club, enda ekki annað hægt þegar sagt er frá hinum víðfræga Bingóstjóra þar vestur frá.
Darlingarnir eru: Eysteinn Eysteinsson á trommum, Georg Grundfjörð á bassa, og svo Bílddælingarnir Jón Sigurður Eyjólfsson sem syngur og leikur á gítar, og Pétur Valgarð Pétursson gítarleikari. Einnig segja þeir kumpánar sögur af söngvum þessum svo allir sem ættaðir eru utan þjónustusvæðis nái samhenginu.
Advertisement

Event venue

Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland, Grundarstígur 10, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events in Reykjavík

URÐ 10 ára

Thu, 15 Oct at 05:00 pm Fiskislóð 81, 101 Reykjavík, Iceland

Reykjavík is happening.

See everything else that’s on — concerts, markets, comedy and more.