Advertisement
Fundurinn sem átti að vera þriðjudaginn 6. október hefur verið frestað til fimmtudagsins 15. október nk.Þá verða fyrirhugaðar breytingar á byggingarreglugerð er varða aðgengi og öryggi við notkun kynntar. Fundurinn verður haldinn í sal HMS að Borgartúni 21, kl. 14:00. En einnig verður hægt að fylgjast með honum á hms.is/streymi.
HMS boðar til kynningarfundar um breytingu á byggingarreglugerð er varðar hluta 4 um aðgengi og öryggi við notkun.
Á fundinum verða tillögur að breyttum hluta um aðgengi og öryggi við notkun kynntar og í framhaldinu verður boðið upp á opið samtal þar sem hagaðilum gefst tækifæri að koma ábendingum og athugasemdum á framfæri.
Fundurinn er liður í endurskoðun og einföldun byggingarreglugerðar. Markmið endurskoðunarinnar er að gera reglugerðina einfaldari og skýrari með aukinni áherslu á virknimiðaðar kröfur, samræmda uppbyggingu og meira svigrúm til fjölbreyttra lausna.
Hluti 4 um aðgengi og öryggi við notkun tekur efnislega til 6., 7. og 12. hluta gildandi reglugerðar.
Drög að 4. hluta byggingarreglugerðarinnar um aðgengi og öryggi við notkun ásamt greinargerð um breytingar verða birtar hér fyrir fundinn, þar sem einnig verður hægt að skila athugasemdum rafrænt.
Advertisement
Event venue
Borgartún 21, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Borgartún 21, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets