Advertisement
Syngjum saman í Hannesarholti með Hörpu Þorvalds. Streymt verður frá söngstundinni. Harpa er verkefnastjóri tónlistar- og barnamenningar á Skóla og frístundasviði Reykjavíkurborgar og stýrir þar á meðal verkefnunum Syngjandi skóli, Skrekk og Barnamenningarhátíð. Söngurinn er henni mjög hugleikinn og óhætt að segja að hún sameini kynslóðir í söng. Áður starfaði hún sem tónmenntakennari og kórstjóri við Laugarnesskóla í Reykjavík. Auk þess hefur Harpa stjórnað vikulegum söngstundum á Hrafnistu frá árinu 2018, haldið utan um viðburðinn Syngjum saman í Hannesarholti á árum áður og er sjálfstætt starfandi tónlistarkona og meðlimur í hljómsveitinni Brek.
Textar á tjaldi svo allir geti sungið með. Allar kynslóðir velkomnar. Frítt inn.
Advertisement
Event venue
Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland, Grundarstígur 10, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets