Advertisement
Valgeir Skagfjörð, leikari og tónlistarmaður flytur erindi um leið listamannsins að sköpun sinni. Hann veltir fyrir sér hvernig listamenn í gegnum tíðina hafa leitað hins æðra í víðtækum skilningi þess orðs til að leita að innblæstri til að geta unnið að verkum sínum; ýmist Guði til dýrðar eða snúið bænum sínum að listagyðjum á borð við Saraswati, eða hinna níu „músu“ Grikkja - þeirra Kallíópu, Klíó, Þalíu og annarra sem hver um sig stóð fyrir tiltekna grein hinna göfugu og fögru lista. Norrænu goðin stóðu líka fyrir fagrar listir eins og Bragi, Iðunn, Saga og Óðinn sjálfur sem réði yfir skálfskaparmjöðnum. Valgeir fer um víðan völl með sína eigin reynslu í farteskinu um lendur skáldskapar, leiklistar og tónlistar og ígrundar gildi þess að leita hins æðsta í allri listsköpun.
Erindið verður í tali, tónum og tilraunum til að nálgast hið æðra í augnablikinu sem lifir þá stund sem við deilum saman.
Kaffi og samvera á efri hæð að erindi loknu.
Advertisement
Event venue
Ingólfsstræti 22, 101 Reykjavík, Iceland, Ingólfsstræti 22, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland
Tickets