Advertisement
Í tilefni af vetrarfríi í grunnskólum býður Þjóðminjasafn Íslands börnum á yngsta- og miðstigi í heimsókn í safnið að skoða sýningar safnsins með safnkennara föstudaginn 23. október kl. 14.Gripir safnsins geyma margar sögur. Beinagrindurnar á sýningunni gefa t.d. einstakar upplýsingar um líf og dauða manneskjanna sem þær tilheyrðu og auka við skilning okkar á lífinu á víkingaöld hér á landi. Ríkulegur brúðarbúningur frá 18. öld dregur fram ævintýraleg örlög kvennanna í einni efnuðustu valdaætt landsins. Og ferðalag sjálfs búningsins í gegnum aldirnar og á sýningu í safninu dag er hreint ótrúlegt. En baðstofan? Hvað erum við að tala um þegar við tölum um baðstofu?
Að skoðun lokinni er boðið upp á klippimyndasmiðju í anda vegglistaverks Kristjana Williams Studio á sýningunni Með sögu í farangrinum - Brúðarbúningurinn í fjölskyldu- og barnarýminu á 1. hæð, þar sem einnig má gleyma sér í frjálsum leik.
Í tilefni af vetrarfríi í grunnskólum býður safnið einum fullorðnum í fylgd með barni ókeypis aðgang á þessa leiðsögn. Ávallt er ókeypis er á sýningar og viðburði fyrir börn að 18 ára aldri.
-----
To mark the winter break in primary schools, the National Museum of Iceland invites children of primary school age to visit the museum and explore its exhibitions with a museum educator on Friday, 23 October at 14:00.
The museum’s objects hold many stories. The skeletons on display, for example, provide unique information about the lives and deaths of the people they belonged to and deepen our understanding of life in Iceland during the Viking Age. An elaborate 18th-century bridal costume reveals the remarkable lives of women from one of Iceland’s wealthiest and most powerful families. The journey of the costume itself through the centuries, culminating in its presence in the museum today, is equally extraordinary. And what about the baðstofa? What exactly do we mean when we talk about a baðstofa?
After exploring the exhibitions, children are invited to take part in a collage workshop inspired by the wall artwork created by Kristjana Williams Studio for the exhibition With History in the Luggage – The Bridal Costume. The workshop takes place in the family and children’s area on the first floor, where children can also enjoy free play.
Please note that the event is in Icelandic.
To mark the winter break in primary schools, the museum is offering free admission to this guided tour for one adult accompanying a child. Admission to exhibitions and events is always free for children under the age of 18.
Advertisement
Event venue
Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland, Suðurgata 41, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland
Tickets