Advertisement
Velkomin í kvöldstund í Ljósheimum með Margréti Örnu og Sólbjörtu.Þetta er stund til að slaka djúpt á og endurnærast í einstöku rými þar sem hljóð og orka hjálpa þér inn í betra jafnvægi.
Við leiðum þig inn í djúpslökun og heilun með kristallaskálum, kristalshörpu, gongi og öðrum hljóðfærum sem næra þig bæði andlega og líkamlega.
Í Ljósheimum ertu umvafin/n hundruði kristalla sem styðja við orkuna þína og efla jafnvægi á meðan tónheilunin á sér stað.
Þú færð einnig að velja þér kristalla sem vinna sérstaklega með þér í stundinni – eftir þinni þörf og innsæi.
Komdu og upplifðu kyrrð, tengingu og heilun með okkur.
Sólbjört og Margrét Arna sem leiða kvöldið eru báðar heilarar og kennarar og hafa starfað við bæði í fjöldamörg ár. Þær starfa báðar í Ljósheimum og eru einnig með hlaðvarpið Á plánetunni jörð sem þú finnur á Spotify.
Verð fyrir kvöldstundina er kr. 7000
Vinsamlegast greiðið fyrirfram með millifærslu eða komið með reiðufé: 0115-26-8106 kt. 191076-3039
Skráning fer fram hér:
[email protected] eða [email protected]
Pláss eru takmörkuð og nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram– bókaðu þína stund og komdu í djúpslökun og heilun í Ljósheimum
Það er gott að hafa eftirfarandi í huga:
Komdu 15 mínútum fyrr svo þú komir ekki á spani. Ekki er hægt að hleypa þeim inn sem koma of seint.
Slökktu á símanum.
Drekktu vel af vatni fyrir og eftir tónheilunina.
Ekki er mælt með notkun lyfja eða alkóhóls fyrir eða eftir tónheilunina.
Í tónheiluninni liggur þú á gólfinu. Á staðnum eru dýnur, koddar, teppi og augnhvílur. Þér er velkomið að taka með þér auka hluti ef þú veist að þeir gera þér gott.
Vinsamlega snertið ekki hljóðfærin :)
Advertisement
Event venue
Skipholti 50b, 105 Reykjavík, Iceland, Skipholt 50B, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets