#StayHappening
Thu Nov 05 2026 at 02:00 pm to 03:00 pm UTC+00:00

Mini Model UN á Alþjóðadögum HÍ

  • Háskóli Íslands · Reykjavík
F\u00e9lag Sameinu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0anna \u00e1 \u00cdslandi Publisher / Host Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi
Share
Mini Model UN \u00e1 Al\u00fej\u00f3\u00f0ad\u00f6gum H\u00cd
Advertisement
Félag Sameinuðu þjóðanna á Alþjóðadögum HÍ
Þann 5. nóvember kl.14-15 í Odda, stofu 201 bjóðum við áhugasömum háskólanemendum að taka þátt í örútgáfu af hermilíkani Sameinuðu þjóðanna: Mini-MUN.
Skrá sig hér ➡️ https://l1nq.com/0b1c5pd
Viðburðurinn býður upp á einstakt tækifæri til að kynnast starfi Sameinuðu þjóðanna, öðlast innsýn í alþjóðlega ákvarðanatöku og takast á við eina af brýnustu öryggisáskorunum samtímans.
Viðfangsefni fundarins er fæðuöryggi í Súdan í skugga loftslagsbreytinga. Súdan stendur frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem vopnuð átök, fólksflótti, fæðuskortur og áhrif loftslagsbreytinga hafa skapað gríðarlegar áskoranir fyrir íbúa landsins. Þurrkar, flóð og ófyrirsjáanleg veðurskilyrði hafa áhrif á landbúnað og aðgengi að matvælum, á sama tíma og átök torvelda matvælaframleiðslu, dreifingu hjálpargagna og aðgengi fólks að nauðsynlegum björgum.
Viðburðurinn byggir á aðferðafræði Model UN (Hermilíkani Sameinuðu þjóðanna), þar sem þátttakendur setja sig í spor fulltrúa aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna og taka þátt í umræðum og samningaviðræðum um hvernig alþjóðasamfélagið geti brugðist við stöðunni í Súdan.
Þátttakendur færa rök fyrir afstöðu sinni og vinna saman að tillögum sem stuðla að auknu fæðuöryggi, mannúðaraðstoð og sjálfbærum lausnum.
Markmið viðburðarins er að skapa tækifæri fyrir háskólanema til að þjálfa sig í að takast á við raunverulegar alþjóðlegar áskoranir, skiptast á hugmyndum og öðlast reynslu af því hvernig alþjóðasamfélagið vinnur að sameiginlegum lausnum.
Þátttaka í þessari örútgáfu tryggir þátttakendum forgang að lengri Model UN ráðstefnu í vor.
Advertisement

Event venue

Háskóli Íslands, Sæmundargata 4, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Discover more events by tag

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events in Reykjavík

ANOK

Fri, 06 Nov at 06:00 pm Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík, Iceland

Reykjavík is happening.

See everything else that’s on — concerts, markets, comedy and more.