Advertisement
Verið velkomin á opnun sýningarinnar Þúsundblómabreiða eftir Eggert Pétursson, í Listasafni Íslands föstudaginn 6. nóvember. Flóran á norðurslóðum myndar kjarnann í listsköpun Eggerts Péturssonar. Hann sækir í djúpa þekkingu sína á íslenskum plöntum og byggir upp myndheim sem er í senn grasafræðilega nákvæmur og ímyndaður, jarðbundinn og upphafinn. Eggert vinnur út frá stærðarhlutföllum harðgerðra blóma, burkna og mosa, sem vaxa við krefjandi skilyrði norðlægs loftslags, og birtir okkur stórkostlega heima í málverkum sínum. Þá byggir hann yfirborðið upp í lögum svo að myndflöturinn virðist allt að því taka á sig yfirbragð sjálfs landslagsins.
Titill sýningarinnar, Þúsundblómabreiða, vísar til þeirrar blómadýrðar sem einkennir verk Eggerts og tengir þau jafnframt við langa sögu blóma í myndlist og hönnun. Á sýningunni er sjónum einkum beint að málverkum sem Eggert hefur unnið á síðustu fimmtán árum, eftir yfirlitssýningu listamannsins í Listasafni Reykjavíkur árið 2007. Á þessu tímabili má greina vissa áherslubreytingu í átt að andlegri eða dulrænni nálgun sem tengist meðal annars reynslu Eggerts af sýningarstjórn árið 2019, þegar hann setti saman sýningu á blómateikningum og málverkum Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals í Listasafni Reykjavíkur.
Eggert Pétursson (f. 1956) er einn ástsælasti listamaður landsins. Hann fæddist í Reykjavík og býr þar og starfar. Hann nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk framhaldsnámi við Jan van Eyck Academie í Maastricht árið 1981. Þótt málverk hans séu hlutbundin liggja rætur listsköpunar hans í Fluxus-hreyfingunni og hugmyndalist sjöunda og áttunda áratugarins. Verk hans kallast jafnframt á við pósthúmanískar og vistfræðilegar áherslur samtímans.
Sýningin er samstarfsverkefni Listasafns Íslands og Listasafnsins í Turku í Finnlandi.
//
You are warmly invited to the opening of Millefleurs by Eggert Pétursson at the National Gallery of Iceland on Friday, 6 November.
Arctic flora lies at the heart of Eggert Pétursson’s art. Drawing on an intimate knowledge of Icelandic plants, Pétursson invents compositions that are both botanically accurate and imagined, earthly and transcendent. Attuned to the scale of the resilient flowers, ferns, and mosses found in harsh northern climates, Pétursson conjures entire worlds in his paintings, at times creating relief-like surfaces, where the canvas ground itself seems topographical.
The exhibition title Millefleurs celebrates the abundance of floral splendor in Pétursson’s work, linking it to the depiction of flowers in the larger history of art and design. The selection of works focuses primarily on paintings produced over the past 15 years, the period following Pétursson’s 2007 retrospective at the Reykjavík Art Museum. It marks a recent shift toward evoking the spiritual, brought about by Pétursson’s experience curating the 2019 exhibition, also at the Reykjavík Art Museum, of flower sketches and paintings by the Icelandic modernist master Jóhannes Sveinsson Kjarval.
One of Iceland’s most beloved artists, Eggert Pétursson (b. 1956) lives and works in Reykjavík, where he was born. He studied at the Icelandic College of Art and Crafts in Reykjavík and received a graduate degree from the Jan van Eyck Academie in Maastricht in 1981. Although his paintings are representational, his artistic roots are in the Fluxus and conceptual art movements that dominated the 1960s and 1970s. His work resonates with posthumanist and ecological concerns.
The exhibition was co-organized by the National Gallery of Iceland and the Turku Art Museum in Finland.
Advertisement
Event venue
Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík, Iceland, Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Discover more events by tag
Exhibitions in ReykjavíkFine-arts in ReykjavíkArt in ReykjavíkPainting in ReykjavíkFlowers in Reykjavík