Advertisement
English below10. október - Takið daginn frá!
Taktu þátt í umræðunni um mikilvægi þess að standa vörð um mannréttindi til að tryggja varanlegan frið
Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytisins í samstarfi við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi fer fram þann 10. október, frá kl. 10:00 – 18:00.
Á tímum vaxandi einræðishyggju, hnignunar lýðræðis og bakslags í mannréttindum, þar á meðal kynjajafnrétti og réttindum LGBTQI+ fólks, er brýnt að beina athygli að því hvernig slíkt bakslag ógnar grundvallarforsendum friðaruppbyggingar. Þegar réttindi einstaklinga eru skert og jaðarhópar verða fyrir kerfisbundinni mismunun, grafa stjórnvöld undan trausti, félagslegri samheldni og þátttöku almennings í lýðræðislegum ferlum. Verndun mannréttinda er því lykilforsenda þess að tryggja varanlegan og réttlátan frið.
Aðalfyrirlesarar eru meðal annarra:
🎙️ Nazanin Boniadi – heimsþekkt leikkona og mannréttindafrömuður sem leggur áherslu á réttindi kvenna og tjáningarfrelsi í Íran og víðar.
🎙️ Jessica Stern – fyrrum sérstakur sendifulltrúi Bandaríkjanna í málefnum LGBTQI+ fólks og fræðimaður við Carr-Ryan Center for Human Rights við Harvard Kennedy School
🎙️ Vladimir Kara-Murza – rússneskur blaðamaður og lýðræðissinni sem hefur verið fangelsaður fyrir opinskáa andstöðu sína við einræðishætti og óþreytandi baráttu fyrir pólitísku frelsi
Merkið daginn í dagatalið
Nánari upplýsingar um dagskrá og skráning verður aðgengileg fljótlega www.ams.hi.is
******************************************
Save the date – October 10
Join us on October 10, 2025 for our annual peace conference The Imagine Forum, hosted by Höfði Reykjavík Peace Centre and the Ministry for Foreign Affairs in collaboration with the United Nations Association in Iceland.
In a time of rising authoritarianism, democratic backsliding, and growing pushback against human rights, gender equality, and LGBTQI+ rights, this conference brings together leading thinkers, activists and policy makers to discuss how protecting rights is essential to building lasting peace
Keynote speakers include
🎙️ Nazanin Boniadi – Award-winning actress and renowned human rights advocate focusing on women’s rights and freedom of expression in Iran and beyond
🎙️ Jessica Stern – Former U.S. Special Envoy for LGBTQI+ Rights and Senior Fellow at the Carr Center for Human Rights Policy
🎙️ Vladimir Kara-Murza – Russian journalist and democracy activist that was imprisoned for his outspoken opposition to authoritarianism and tireless defense of political freedoms
Mark your calendar
Further information and registration coming soon at www.ams.hi.is
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Veröld - hús Vigdísar, Háskóla Íslands, Brynjólfsgata 1, 107 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland