Advertisement
Rannsóknarsetur um ójöfnuð verður formlega opnað þann 10. október klukkan 13:30 í fyrirlestrarsal Eddu. Tilgangur setursins er að nota bestu gögn og aðferðir sem Félagsvísindin hafa upp á að bjóða til að greina ójöfnuð á fjórum sviðum. Þau eru Heilsa, Menntun, Kyn/Fjölskylda og Umhverfismál. Silja Bára Ómarsdóttir, rektor HÍ mun formlega opna rannsóknarsetrið og Jason Beckfield prófessor í félagsfræði við Harvard háskóla og fyrrum ráðgjafi í ríkisstjórn Pete Buttigieg um réttlát orkuskipti heldur opnunarerindi. Að því loknu mun hann eiga samtal við Jóhann Pál Jóhannsson, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra um stefnumótun varðandi réttlát orkuskipti með áherslu á samspil rannsókna og stefnumótunar. Eftir viðburðinn verður boðið upp á veitingar.
Viðburðurinn fer fram á ensku
Öll velkomin.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Háskóli Íslands - Edda fyrirlestrarsalur, Sæmundargata 4, 102 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland