Advertisement
Fimmtudaginn 9.október ætla Móar og Gulur Bíll að halda tónleika á BirdAðgangseyrir er 2000 krónur eða pay what you can.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og lofum við stuði framá kvöld!
------------------------
Thursday, October 9th, Móar and Gulur Bíll will be playing a concert at Bird.
Admission is 2000 ISK or pay what you can.
The show starts at 9 PM, and we promise a lively night!
------------------------
Móar gaf út sína fyrstu breiðskífu, Einmana, í byrjun maí og má nálgast hana á öllum helstu streymisveitum. Platan er full af einlægum íslenskum textum og tónlist sem sameinar alt-rokk, þjóðlagatónlist og kántrítónlist.
Ásamt Snorra leika þeir Arnar Kári Guðjónsson á bassa, Hróðmar Sigurðsson á gítar og pedal steel, og Steinn Daði Gíslason á trommur – saman skapa þeir kraftmikla og einstaka tónleikaupplifun. Flutt verða lög af plötunni Einmana ásamt öðrum nýjum og eldri lögum úr smiðju Móars. Þeim til halds og traust þetta kvöld verður hljómsveitin Gulur bíll.
Gulur bíll. Hugsanlega eitthvað grand consept, mögulega stórkostlegar pælingar. Sennilega samt bara fjórir gaurar á fertugsaldri…
Psych-rokk með kraut-ívafi og popptwisti. Hljómar kannski best með eyrnatöppum.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Bird RVK, Tryggvagata 24, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland