Advertisement
Slagarasveitin ásamt einvala hópi tónlistarmanna heldur tónleika í Iðnó fimmtudaginn 9. október. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og er miðaverð 5.900 kr.Slagarasveitin er hljómsveit sem á ættir sínar að rekja til Hvammstanga. Hljómsveitin var upphaflega stofnuð árið 1986 af æskuvinum en var endurvakin fyrir nokkrum árum síðan eftir margra ára hlé.
Sveitin gaf út hljómplötu fyrir tveimur árum en lög af henni verða spiluð á tónleikunum ásamt nýju efni.
Nýr söngvari sveitarinnar, Kristinn Rúnar Víglundsson mun koma fram með sveitinni í fyrsta sinn.
Lagavalið er fjölbreytt en það er Ragnar Karl Ingason sem semur að mestu lögin en Skúli Þórðarson ásamt Ragnari Karli texta sveitarinnar.
Slagarasveitin er dæmi um hvernig gömul vinátta og ný sköpun getur orðið að hljóði sem sameinar fólk og veitir gleði.
Slagarasveitina skipa Geir Karlsson bassi, Kristinn Rúnar Víglundsson söngur, Ragnar Karl Ingason gítar, söngur og munnharpa, Skúli Þórðarson ásláttur, Stefán Ólafsson gítar og raddir.
Auk þeirra stíga á stokk með sveitinni Aldís Olga Jóhannesdóttir söngur, raddir og þverflauta, Eyþór Franzson Wechner hljómborð og pianó, Kristín Guðmundsdóttir raddir og þverflauta, Guðmundur Hólmar Jónsson rafgítar, Einar Friðgeir Björnsson harmonika og Ásmundur Jóhannsson trommur.
Miðasala á Tix.is.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
IÐNÓ, Vonarstræti 3,Reykjavík, Iceland
Tickets