#StayHappening
Sat Oct 10 2026 at 04:00 pm to 06:00 pm UTC+00:00

Sýningaropnun | Guðjón Ketilsson | Spor

  • Freyjugata 41, Reykjavík, Iceland · Reykjav
\u00c1smundarsalur Publisher / Host Ásmundarsalur
Share
S\u00fdningaropnun | Gu\u00f0j\u00f3n Ketilsson | Spor
Advertisement
Verið hjartanlega velkomin á opnun einkasýningar Guðjóns Ketilssonar, Spor, laugardaginn 10. okt kl. 16 í Ásmundarsal.
Á einkasýningu Guðjóns Ketilssonar, Spor, mætast fjórir verkhlutar sem ekki hafa verið sýndir áður; teikningar þar sem handskrifaður textamassi fyllir myndflötinn; hversdagslegir, fundnir hlutir sem öðlast nýja nærveru og annað hlutverk; olíukrítarteikningar af fundnum hlutum og stækkuð fingraför þar sem persónulegar hugleiðingar fylgja línum líkamans í teikniskrift. Sameiginlegur kjarni verkanna felst í því hvernig hugsun, nærvera og skynjun taka á sig sýnilega og efnislega mynd og skilja eftir sig ummerki.
Guðjón Ketilsson (f. 1956) býr og starfar í Reykjavík. Á rúmlega fjörutíu ára ferli hefur hann haldið yfir þrjátíu einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum í Evrópu, Bandaríkjunum, Kína, Ástralíu og á Norðurlöndunum, auk sýninga í helstu listasöfnum og sýningarýmum á Íslandi. Hann vinnur aðallega með teikningu og skúlptúr. Verk hans einkennast af nákvæmu handverki og rannsóknum á mannslíkamanum, hversdagslegu umhverfi, tíma, minni og sögu. Í nýlegum verkum kannar hann einnig tungumál og skrift sem framlengingu hugsunar og skoðar texta sem teikningu og mynd í senn, auk þess sem fundnir hlutir, sem lokið hafa fyrra hlutverki sínu, fá oft nýtt líf í skúlptúrum hans.
Guðjón hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin árið 2020 og var yfirlitssýning á myndlistarferli hans haldin á Kjarvalsstöðum, Listasafni Reykjavíkur árið 2022. Listferli Guðjóns hafa verið gerð skil í tveimur veglegum bókum, auk þess sem fjöldi minni útgáfa um einstaka sýningar hans hafa verið gefnar út. Verk hans eru í eigu helstu listasafna landsins, í einkasöfnum og nokkrum erlendum söfnum, þeirra á meðal í Metropolitan Museum of Art í New York.
Advertisement

Event venue

Freyjugata 41, Reykjavík, Iceland, Freyjugata 41, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events

Sir Bryn Terfel

Sat, 10 Oct at 08:00 pm Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre