#StayHappening
Sat Oct 10 2026 at 03:00 pm to 04:30 pm UTC+00:00

Allt í rugli! og Dómsdagur - tvöfalt útgáfuboð

  • Salka · Reykjav
Share
Allt \u00ed rugli! og D\u00f3msdagur - tv\u00f6falt \u00fatg\u00e1fubo\u00f0
Advertisement
Komið og fagnið með okkur útgáfu bókanna Allt í rugli! eftir Yrsu Þöll Gylfadóttur og Dómsdagur eftir Bergrúnu Írisi og Simma.
Bráðfyndnir upplestrar, áritanir, happdrætti, spjall og léttar veitingar!
Hlökkum til að sjá ykkur!
---
Allt í rugli! fjallar um Sigrúnu, sem er þrettán að verða fjórtán og er búin að ákveða að hún ætli ekki að vera lúði lengur – sérstaklega ekki eftir að Aníta flutti í götuna. En ef hún ætlar að verða vinkona Anítu verður ýmislegt að breytast í lífi hennar. Barnalega æskuvinkonan verður að fjúka. Svo verður hún að gera eitthvað í þessari glötuðu fjölskyldu sinni. Af hverju er heimilið þeirra svona subbulegt? Ætti ekki að vera ólöglegt að setja hangikjöt og grænar baunir ofan á pítsu? Og hver fer til Transylvaníu þegar hægt er að fara til Tenerife? Með hjálp nýju vinkonunnar ræðst hún í verkefnið með ófyrirséðum afleiðingum.
Hér er á ferðinni bráðfyndin og dramatísk saga um unglingsstúlku sem stendur á tímamótum. Yrsa Þöll Gylfadóttir hefur áður skrifað skemmtilegar og áleitnar bækur fyrir börn og fullorðna, meðal annars hinar geysivinsælu léttlestrarbækur Bekkurinn minn.

Dómsdagur fjallar um blóðþyrstu mannæturnar Dag og Ylfu, sem eru á flótta undan Interpol ásamt læknanemanum Inga Birni. Þegar hungrið vaknar er aðeins ein leið til þess að seðja það! Flóttinn verður að blóði drifinni Evrópureisu með viðkomu í líkbrennslu í Stuttgart, útsýnisturni í Svartaskógi og baðhúsi í Búdapest.
Varúð! Bókin inniheldur blóð og innyfli en einnig erótík og blauta kossa í formi trylltra teikninga eftir Simma Breiðfjörð. Lestu líka Veikindadag, Nammidag og Skuldadag – en hafðu í huga að bækurnar um Dag og Ylfu eru alls ekki fyrir viðkvæma!
Höfundarnir hafa hlotið verðskuldað lof lesenda og gagnrýnenda og hafa fengið bæði verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín.

www.bokabeitan.is
Advertisement

Event venue

Salka, Hverfisgata 93, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events

Sir Bryn Terfel

Sat, 10 Oct at 08:00 pm Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre