#StayHappening
Fri Oct 02 2026 at 08:00 pm to 10:00 pm UTC+00:00

Sálmurinn um blómið

  • Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland · Reykjav
Hannesarholt Publisher / Host Hannesarholt
Share
S\u00e1lmurinn um bl\u00f3mi\u00f0
Advertisement
Leikgerð Jóns Hjartarsonar á Sálminum um blómið eftir Þórberg Þórðarson var sýnd í Hannesarholti í maí og hlaut frábærar viðtökur, eins og hún hlaut á Sögulofti Landnámsseturs síðasta vetur. Nú er verkið flutt í bæinn.
Verkið markar tímamót á ritferli Þórbergs og er ein af hans ástsælustu bókum. Sagan um rithöfundinn sem stígur inn í hugarheim barns að uppgötva veröldina og verður um leið bernskur. Hann reynir, oft með kostulegum tilburðum, að fylgja þeirri þroskasögu.
Jón Hjartarson, sem sló í gegn á sínum tíma með túlkun sinni á Þórbergi í Ofvitanum í Borgarleikhúsinu, tekst nú á við skáldið tæpum fimmtíu árum síðar
„Jón er hann sjálfur sem sögumaður í sýningunni en bregður á leik um leið og aðrir taka til máls. Með einföldum hreyfingum, svipbrigðum og fasi verður hann aðalpersónurnar hver á fætur annarri, Lilla Hegga, Sobeggi afi og Mammagagga. Með þessu varð frásögnin lifandi og skýr og textinn naut sín alveg í botn. Yfirfullt Söguloftið endurómaði aftur og aftur af skellihlátri – ég held að ég hafi aldrei hlegið eins mikið á sýningu á þeim stað og hafa þær þó margar verið skemmtilegar.“
— Silja Aðalsteinsdóttir (TMM)
„ Töfrakarlinn talar“
„Öllu þessu miðlar Jón ákaflega fallega. “
„Sobbeggi, Lillahegga og Mammagagga, að ógleymdum sjálfum Guði almáttugum, eru mætt á Söguloftið í líki Jóns Hjartarsonar”. Eða eiginlega öfugt. Og bæði. Það eru töfrarnir.
— Þorgeir Tryggvason (mbl)
Advertisement

Event venue

Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland, Grundarstígur 10, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events