Advertisement
𝐄𝐧𝐠𝐥𝐚 𝐑𝐞𝐢𝐤𝐢 𝟏 & 𝟐 𝐯𝐢𝐧𝐧𝐮𝐬𝐭𝐨𝐟𝐚Engla Reiki er dásamlega mjúk en kröftug heilunaraðferð sem við getum notað dags daglega fyrir okkur sjálf, fjölskyldu, vini og dýrin okkar, sem og boðið viðskiptavinum.
Þessi vinnustofa kennir hina mögnuðu heilunaraðferð sem Engla Reiki er og er kennt yfir föstudagskvöld 18.00-22.00, laugardag 9.30-17.30 og sunnudag 9.30-16.30.
Þátttakendur taka á móti 1. og 2. gráðu Engla Reiki á þessum tíma og fá praktíska reynslu í nokkrum mismunandi meðferðaraðferðum.
Samstillingin (attunement), sem tengir þátttakendur við heilunarenglana sína sem vinna með hverjum einstaklingi þar eftir, inniheldur Reiki tákn sem eru samstillt gegnum tíðni englanna. Þessi tákn voru gefin mannkyninu af St. Germain á tímum Atlantis. Ekki er þörf á að læra táknin.
Þessi vinnustofa gefur þér:
- Vinnu með karma þar sem unnið er með að klippa á tengsl sem ekki þjóna okkur og hreinsun englanna fyrir hverja innstillingu.
- Fulla innstillingu á Engla Reiki fyrsta og annað stig.
- Praktíska reynslu af heilun þar sem miðlað er heilunarorku englanna, þriðja auga heilun, heilun með meisturum og vetrarbrautarheilurum, og fjölvídda- og fyrri lífa heilun.
- Leiðsögn varðandi sjálfsheilun, fjarheilun, að meðhöndla ófrískar konur, börn og dýr.
- Praktísk ráð varðandi heilunarmeðferðir.
- Master kristal sem heldur heilunartáknum englanna.
- Handbók á íslensku.
- Fræðslu og hugleiðslu á myndbandi um orkustöðvarnar 12 en það er undirbúningur fyrir námskeiðið.
- Táknin sjö sem gefin voru eru virkjuð á tíðni englanna í gegnum hin sjö stig forms og Guðlegs forms gegnum Metatron erkiengil.
- Samstillingu við englaríki ljóssins í elleftu víddinni í gegnum Metatron erkiengil.
- Skírteini um að þjálfun sé lokið á fyrsta og öðru stigi Engla Reiki.
Alma hefur kennt Engla Reiki frá 2020 en það sem heillaði hana við aðferðina er að hún er einföld og örugg, og englaorkan sem unnið er í er afskaplega mjúk og notaleg bæði fyrir meðferðaraðilann og þiggjandann.
Hægt er að lesa meira um Engla Reiki, námskeiðin og meðferðaraðila á vefnum okkar, en skráning fer aðeins fram þar.
Advertisement
Event Venue
Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.





