Model NATO-ráðstefna - ætluð 18 til 35 ára - skráning lokar 20. ágúst

Fri, 02 Oct, 2026 at 09:00 am UTC+00:00

Alþingi | Reykjavík

Utanr\u00edkisr\u00e1\u00f0uneyti\u00f0 - utanr\u00edkis\u00fej\u00f3nusta \u00cdslands
Publisher/HostUtanríkisráðuneytið - utanríkisþjónusta Íslands
Model NATO-r\u00e1\u00f0stefna - \u00e6tlu\u00f0 18 til 35 \u00e1ra - skr\u00e1ning lokar 20. \u00e1g\u00fast
Advertisement
Model NATO-ráðstefna verður haldin á Alþingi þann 2. október 2026 og er ætluð ungu fólki á aldrinum 18 til 35 ára sem hefur áhuga á alþjóðamálum, stjórnmálum, lögfræði, heimspeki, löggæslu, varnarmálum eða opinberri þjónustu.
Opnað hefur verið umsóknir.
Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst 2026.
Sjá skráningarform hér: https://forms.office.com/e/vB3gpaczU5
-----------
Ráðstefnan er skipulögð af utanríkisráðuneytinu í samstarfi við breska sendiráðið í Reykjavík, Alþingi, YATA Ísland og Varðberg. Háskólinn í Birmingham sér um fundarstjórn.
Á ráðstefnunni taka þátttakendur að sér hlutverk fulltrúa aðildarríkja NATO og vinna saman að því að bregðast við sviðsettu alþjóðlegu neyðarástandi. Sviðsmyndin þróast yfir daginn og krefst þess að þátttakendur beiti hraðri hugsun, samningatækni, diplómatískri færni og getu til að vinna undir álagi.
Markmiðið er að veita þátttakendum innsýn í ákvarðanatöku innan Atlantshafsbandalagsins og hvernig aðildarríki þurfa að samræma ólíka hagsmuni, sjónarmið og áherslur þegar alþjóðlegt öryggi er í húfi.
Model NATO er því einstakt tækifæri fyrir ungt fólk til að kynnast starfsemi alþjóðastofnunar sem hefur mikil áhrif á öryggi og stjórnmál í Evrópu og á Norður-Atlantshafssvæðinu. Þátttakendur fá jafnframt tækifæri til að efla færni sína í ræðumennsku, teymisvinnu, stefnumótun, greiningu og samningaviðræðum.
Viðburðurinn fer fram á ensku.
Þátttaka er þátttakendum að kostnaðarlausu og geta 18 til 35 ára sótt um.
Verði aðsókn mikil kann íslenskum ríkisborgurum að verða veittur forgangur.
Þau sem valin verða til þátttöku fá tilkynningu í lok ágúst. Í kjölfarið verður þátttakendum úthlutað ríki og teymi, auk þess sem þau fá nánari upplýsingar um dagskrá og undirbúning um tveimur vikum fyrir ráðstefnuna. Gert er ráð fyrir að ráðstefnan standi yfir meiripart dags. Þá mun þátttakendum standa til boða að taka þátt í sérstökum fræðsludegi svo og skoðunarferð á öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli í kringum ráðstefnuna í haust.
Advertisement

Event Venue

Alþingi, Kirkjustræti 14, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

L\u00edfi\u00f0 er tang\u00f3 -  30 \u00e1ra afm\u00e6lish\u00e1t\u00ed\u00f0
Fri, 02 Oct at 05:00 pm Lífið er tangó - 30 ára afmælishátíð

Kramhúsið and Iðnó

Engla Reiki 1 og 2 heilunarn\u00e1mskei\u00f0
Fri, 02 Oct at 06:00 pm Engla Reiki 1 og 2 heilunarnámskeið

Höfuðborgarsvæðið

GLACIER FIGHT NIGHT 3
Sat, 03 Oct at 06:00 pm GLACIER FIGHT NIGHT 3

Úlfarsbraut, 113 Reykjavíkurborg, Ísland

Valgeir Gu\u00f0j\u00f3nsson hei\u00f0ra\u00f0ur
Sun, 04 Oct at 08:00 pm Valgeir Guðjónsson heiðraður

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

Biennial Search and Rescue Conference
Thu, 15 Oct at 08:30 am Biennial Search and Rescue Conference

Harpa Concert Hall and Conference Centre

Rescue 2026
Fri, 16 Oct at 12:00 pm Rescue 2026

Harpa Music Hall Reykjavik Iceland

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events