Advertisement
Velkomin í Icelandair félagsvist í Jónshúsi!Langar þig í skemmtilegt kvöld í góðum félagsskap? Þá er félagsvistin eitthvað fyrir þig! ❤️
Allir geta spilað félagsvist – hvort sem þú ert vanur spilari eða hefur lítið sem ekkert spilað áður. Áður en við byrjum er farið yfir leikreglurnar, þannig að það er ekkert að óttast. 😊
🏆 Verðlaun fyrir flest stig
🙈 Skammarverðlaun fyrir fæst stig
🪑 Setuverðlaun fyrir þann sem situr lengst við sama borðið
Og það er ekki allt! ✈️
Í lok vetrar fá tveir stigahæstu spilarar vetrarins gjafakort frá Icelandair.
Til að tryggja að allir eigi möguleika á að komast á toppinn telja fjögur bestu spilakvöld hvers spilara. Stigin frá þeim kvöldum eru lögð saman og tveir stigahæstu spilararnir fá verðlaunin.
🕡 Húsið opnar kl. 18:30
🃏 Spilamennska hefst stundvíslega kl. 19:00
💰 Verð: 50 kr.
Félagsvist hefur verið spiluð í Jónshúsi í yfir 20 ár og er orðin fastur og skemmtilegur hluti af vetrarstarfinu. Hér hittist fólk, spilar, spjallar, hlær og fær sér smá veitingar. ❤️
Komdu einn eða taktu vin með – allir eru velkomnir!
Við hlökkum til að sjá þig! 🃏🥰
Alma og Guðrún
Advertisement
Event venue
Øster Voldgade 12, 1350 Copenhagen, Denmark, Øster Voldgade 12, 1350 København K, Danmark, Copenhagen , Denmark
Tickets